Knattspyrnudeild
Lengjubikarinn hefst á föstudaginn
Knattspyrna - mfl.karla
Á föstudaginn kemur hefst knattspyrnutímabilið formlega hjá meistaraflokknum í fótboltanum þegar að liðið tekur á móti Víði í Lengjubikarnum (deildabikarinn). Leikurinn fer fram í Kórnum og hefst hann kl. 20.30. Gróttuliðið hefur verið að æfa vel frá því í nóvember undir stjórn þeirra Ásmundar Haraldssonar og Bjarna Jakob Stefánssonar. Stór hópur hefur verið við æfingar og þó nokkur liðsauki bæst við frá því í fyrra. Kristján Finnbogason, fyrrum markvörður KR og landsliðsins fer þar fremstur í flokki. Einnig hefur Edilon Hreinsson ákveðið að ganga til liðs við félagið en gengið verður frá félagaskiptum í vikunni.
Hvetjum alla til að koma og horfa á liðið í miðjum undirbúningi fyrir 2.deildina en Víðir kemur til með að vera í toppbaráttunni í 2.deildinni í sumar. Þessi tvö lið hafa háð mikla baráttuleiki í gegnum árin en skemmst er frá því að segja að liðin léku til úrslita í 3.deildinni fyrir tveimur árum.
Kórinn kl. 20.30 - föstudaginn 13. mars.

