Knattspyrnudeild
Fullt af leikjum á næstu dögum í fótboltanum
Knattspyrna - yngri flokkar
Strákarnir í Gróttu koma til með að spila nokkra leiki núna á næstu dögum hérna á Gróttuvellinum. Í dag tekur 3.flokkur á móti Aftureldingu en leikirnir hefjast kl. 15.00 og 16.30. Á morgun koma Keflvíkingar í heimsókn og spila við 5.flokkinn kl. 17 og 17.50. Á sunnudaginn síðan koma FH-ingar í heimsókn á Gróttuvöllinn og spila við 2.flokkinn kl. 18. Nóg um að vera hjá krökkunum þessa dagana.

