Knattspyrnudeild

6.flokkur karla í fótboltamaraþoni

Knattspyrna - 6.flokkur karla

22.5.2009

Strákarnir í 6.flokki karla ákváðu að halda fótboltamaraþon sem fjáröflunarleið fyrir Shellmótið í Eyjum sem fram fer í lok júní. Þeir spila samfleytt í 6 klukkustundir og hafa núna spilað í 4 tíma þegar þessi grein er skrifuð. Þeir hafa einungis tekið eitt matarhlé en strákarnir 30 hafa spilað streitulaust frá kl. 18 í dag. Foreldrarnir hafa líka tekið þátt og hafa verið spilandi hér líka síðan kl. 18. Þó var farið að draga af þeim og síðast sást til þeirra í vítaspyrnukeppni á meðan strákarnir spila á fullu. Meðfylgjandi eru 3 myndir sem teknar voru í kvöld.

Frá fótboltamaraþoni 6.flokks

Frískir foreldrar

Sindri og Þórður Harry

 

Strákarnir að spila

 

Hjalti einn í gegn á móti Jóa G.

 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.