Knattspyrnudeild
Fótboltmaraþon hjá 6.flokki karla
Knattspyrna - 6.fl. karla
Þann 22. maí hélt 6.flokkur karla í knattspyrnu fótboltamaraþon til að safna fyrir mótsgaldinu á Shell-mótið í Eyjum í sumar. Drengirnir spiluðu knattspyrnu í 6 klst og stoppuðu varla nema í 10 mínútur til að snæða.
Einnig var lið foreldra sem keppti með drengjunum. Áheitum var safnað og náði margir hverjir að safna þó nokkrum fjárhæðum. Þjálfurunum strákanna, Ása og Orra er þakkað fyrir gott skipulag. Maraþonið var sérlega vel heppnað og strákarnir orðnir spenntir að fara til Eyja á Shellmótið í sumar.

.jpg)


