Knattspyrnudeild

Góðir gestir í Afreksskóla knattspyrnudeildar

Knattspyrna - sumarnámskeið

12.6.2009

Það verða engir smá gestir í Afreksskólanum í næstu viku en á mánudaginn kemur Logi Ólafsson þjálfari KR og fyrrverandi landsliðsþjálfari. Með honum í för verður knattspyrnugoðsögnin Pétur Pétursson og ef krakkarnir vita ekki hver hann er þá verða menn að grípa í Íslensk Knattspyrna og fletta uppá kappanum.

Á þriðjudag kemur svo landsliðsþjálfari kvenna Sigurður Ragnar Eyjólfsson en hann fer með A-landslið kvenna á EM í sumar í Finnlandi. Hann ætlaði að gera sitt besta að hafa landsliðskonu með á æfinguna.

Á föstudaginn kemur síðan knattspyrnusérfræðingurinn og þjálfari úrvalsdeildarliðs Breiðabliks, Ólafur Kristjánsson, en hann mun vera með æfingu hjá okkur þann daginn.

Á síðustu tveimur vikunum koma síðan Kristján Finnbogason og Brynjar Björn Gunnarsson og enn á eftir að bóka fleiri snillinga til þess að vera með krökkunum að ógleymdum leikmönnum meistaraflokks karla sem munu kíkja í heimsókn.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.