Knattspyrnudeild
Sigurður Ragnar í heimsókn í Afreksskólanum í dag
Sumarnámskeið
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu var gestur á Afreksskólanum í morgun. Hann var með 80 mínútna æfingu og tók svo létt spjall við krakkana í lokin. Mikill fengur fyrir Gróttu að fá mann eins og Sigurð til að koma og spjalla við krakkana. Í gær komu þeir Jónas Guðni Sævarsson fyrirliði KR og Bjarni Guðjónsson og voru með krökkunum í skotæfingum og vítaspyrnukeppnum. Í lok vikunnar mun síðan Ólafur Kristjánsson koma í heimsókn í Afreksskólann. Kristján Finnbogason markvörður Gróttu mun síðan vera gestur knattspyrnuskólans á föstudaginn kemur. Hann kemur síðan aftur í skólann ef einhverjir missa af honum í þessari viku.

