Knattspyrnudeild
Brynjar Björn heimsótti Afreksskólann í morgun
Knattspyrna - sumarnámskeið
Landsliðsmaðurinn og leikmaður Reading í Englandi, Brynjar Björn Gunnarsson, heimsótti Afreksskóla Gróttu í morgun. Hann var með krökkunum á æfingu og leiðbeindi þeim eins og mögulegt var. Hápunkturinn var þó tvímælalaust þegar að farið var í vítaspyrnukeppni þar sem að Brynjar stóð sjálfur vaktina í markinu. Brynjar þótti efnilegur markmaður þegar hann var á svipuðum aldri og krakkarnir þannig að hann sýndi smá takta í netinu. Að lokum var það Viktor Orri Pétursson leikmaður 5.flokks sem að bar sigur úr býtum og hlaut að launum landsliðstreyju númer 7 en í henni lék Brynjar gegn Makedóníu fyrir fáeinum dögum.

Björn Andri býr sig undir að skora hjá Brynjari

Hópurinn með Brynjari Birni

Brynjar áritar eftir æfinguna

Viktor og Brynjar Björn

