Knattspyrnudeild
Knattspyrnuskóli Gróttu uppfyllir gæðakröfur KSÍ og UEFA
Sumarnámskeið
Ásmundur Haraldsson, yfirþjálfari Gróttu, veitti viðtöku viðurkenningar frá KSÍ vegna knattspyrnuskóla félagsins. Knattspyrnuskólinn uppfyllti gæðamat KSÍ og gæðakröfur fyrir knattspyrnuskóla sem settar eru fram í Grasrótarsáttmála UEFA. Þeir Guðlaugur Gunnarsson og Dagur Sveinn Dagbjartsson frá KSÍ afhentu félaginu viðurkenningu undirritaða af framkvæmdastjóra KSÍ. Myndin var tekin af því tilefni en gestir knattspyrnuskólans þennan daginn voru þeir Kristján Finnbogason og Tryggvi Guðmundsson og eru þeir með hópnum á myndinni ásamt Ásmundi sem heldur á viðurkenningunni.


