Knattspyrnudeild

Líf og fjör í yngri flokkunum

Knattspyrna - Yngri flokkar

11.7.2009

Nóg hefur verið um að vera í yngri flokkum knattspyrnunnar þessa vikuna og hafa nær allir flokkar spilað einhverja leiki. Hér verður farið yfir úrslit vikunnar og greint frá næstu leikjum.

5. flokkur kvenna. Stelpurnar í 5. flokki kvenna spiluðu við lið Álftaness á fimmtudag en stelpurnar í Álftanesi voru í efsta sæti riðilsins fyrir leikinn á meðan Gróttustelpurnar sátu á botninum. Í leiknum sást greinilega að stelpurnar í Gróttu eru að stíga sín fyrstu skref í fóboltanum en flestar hafa æft í minna en ár. Þær hafa þó tekið miklum framförum á síðustu vikum og verður gaman að fylgjast með framgangi þeirra í framtíðinni. Leikurinn endaði með stórsigri stúlknanna frá Álftanesi.

5. flokkur karla. Spilaði við Víking Reykjavík á þriðjudaginn í fimmta Íslandsmótsleik sumarsins. Leikur A-liðsins endaði 1-1 eftir að Pétur Steinn hafði komið Gróttu yfir með fallegu marki. Víkingur jafnaði hins vegar metin þegar tvær mínútur voru eftir en undir lokin fengu Gróttustrákarnir ágæt færi til að tryggja sér sigurinn en allt kom fyrir ekki og jafntefli staðreynd.

Leikur B-liðsins endaði 0-1 í jöfnum leik. Ekki er hægt að segja að lið Víkings hafi verið betra en Gróttuliðið en þó var sem Gróttustrákarnir væru hreinlega ekki vakandi og tilbúnir í slaginn. Því var ekki að sökum að spyrja og Víkingur hafði eins marks sigur eftir mark snemma í seinni hálfleik. Greinilegt að strákarnir í B-liðinu geta miklu betur en þeir sýndu á þriðjudag!

Víkingar eru fáliðaðir þetta sumarið og ná því aðeins í þrjú lið. C- og D-lið Gróttu voru af þeim sökum sameinuð á þriðjudagin til að spila við C-lið Víkings. Gekk það eins og í sögu og enduðu leikar 8-1. Í hálfleik var staðan 3-0 og í seinni hálfleiknum bættust við fimm mörk í öllum regnbogans litum. Fréttamaður var ekki með það fullkomlega á hreinu hverjir skoruðu þessi glæsilegu mörk en Jóhann Óskar, Jón Friðrik og Geir skoruðu a.m.k. eitt mark hver.

5.flokkur_i_fotbolta

Mynd: 5.flokkur karla A-lið á N1-mótinu fagnar. Þeir gerðu jafntefli gegn Víkingum

4. flokkur kvenna. Stelpurnar í 4. flokki eru að stíga sín fyrstu skref í boltanum líkt og stöllur þeirra í 5. flokki. Á þriðjudag léku Gróttustelpurnar við lið ÍBV á Gróttuvelli. Jafnt var á með liðunum til að byrja með en á 20. mínútu skoruðu Vestmannaeyingar og áður en flautað var til hálfleiks voru mörkin orðin fjögur. Seinni hálfleikur fór á sama veg og enduðu leikar 8-0 fyrir ÍBV. Varnarmenn Gróttu áttu í stökustu vandræðum með að passa sóknarmann nr. 9 hjá ÍBV sem skoraði helming marka liðsins og greinilegt að þar er mikið efni á ferðinni. Gróttustelpurnar hafa þó tekið miklum framförum síðustu vikur og mánuði og vonandi eiga þær eftir að halda áfram og gera stóra hluti í framtíðinni.

4. flokkur karla. C-lið 4. flokks spilaði við FH síðastliðinn mánudag. Strákarnir byrjuðu hreint út sagt hræðilega og var staðan orðin 3-0 fyrir FH eftir tæpt korter og í hálfleik stóðu leikar 5-0. Í seinni hálfleiknum tóku Gróttustrákarnir sig aldeilis saman í andlitinu og fljótlega höfðu bæði Þorgeir Bjarki og Axel Ingi skorað. Þegar 10 mínútur voru eftir skoraði Arnar Þór glæsilegt mark og hófst þá stórsókn Gróttu sem stóð út allan leikinn. Mörkin urðu hins vegar ekki fleiri en draga má þann lærdóm af leiknum að mikilvægt er að byrja leikinn um leið og hann byrjar! Lokastaða FH 5 - 3 Grótta.

A- og B-liðin léku svo við KR á föstudaginn en bæði lið höfðu átt erfitt uppdráttar í efstu deildinni það sem af er sumri og því mátti búast við mikilli rimmu. Það er skemmst frá því að segja að A-liðið átti stórleik og sigraði KR-ingana 3-0! Ólafur Ægir og Arnar Steinn skoruðu sitt markið hvor í fyrri hálfleiknum og í þeim seinni bætti Ólafur við öðru marki og sigur Gróttu tryggður, 3-0

B-liðið hóf einnig sinn leik af miklum krafti en Andri Geir skoraði hvorki meira né minna en þrjú mörk í upphafi leiksins og í seinni hálfleiknum bætti Bjarni við fjórða markinu. Eitthvað kæruleysi kom þó yfir Gróttustrákana undir lok leiksins en sóknarmaður KR-inga gerði sér þá lítið fyrir og skoraði þrjú mörk. Sem betur fer urðu mörkin ekki fleiri og sigur í höfn, 4-3.

3. flokkur kvenna. Í vor var ljóst að ekki myndu nógu margar stelpur æfa í 3. flokki til að skrá lið til leiks í Íslandsmótið. Um 14-15 stelpur hafa verið að æfa og nánast allar á yngra ári þannig að óhætt er segja að næsta ár lofi mjög góðu! Eins og áður hefur komið fram tóku stelpurnar þátt í Miðnæturmótinu á Siglufirði á dögunum og stóðu sig þar með mikilli prýði. Nú er mikið um sumarfrí en þegar mannskapurinn fer að týnast í bæinn verða leiknir einhverjir æfingaleikir og er stefnan svo sett á að fara eitthvað út á land í ágústmánuði. Sú hugmynd er þó enn á frumstigi en klárt mál að framtíðin er björt hjá þessum hæfileikaríku stelpum í 3. flokki.

3. flokkur karla. A-lið 3. flokks lék við lið Hrunamanna á Gróttuvelli á þriðjudaginn. Fyrir leikinn var Grótta í 3. sæti riðilsins með 10 stig á meðan Hrunamenn voru í því 7. með fimm stig. Gróttustrákarnir mættu vel stemmdir til leiks og skoruði fljótlega tvö mörk. Björn Axel skoraði fyrsta markið en annað markið skoraði Viggó úr víti. Áður en flautað voru til hálfleiks höfðu Viggó og Ingólfur skoraði tvö mörk til viðbótar og staðan því 4-0. Viggó fullkomnaði svo þrennuna snemma í síðari hálfleik og 5-0 sigur í höfn. Að eigin sögn hafði Viggó ekki skoraði þrennu síðan í 7. flokki og þetta því heljarinnar áfangi fyrir piltinn.

B-liðs 3. flokksins spilaði svo við lið ÍR á föstudag. Leikurinn var æsispennandi en eina mark fyrri hálfleiks gerði Tómas Bjarnason og því 1-0 fyrir Gróttu í leikhléi. Pétur Rögnvaldsson skoraði svo annað mark snemma í síðari hálfleik en stuttu síðar minnkuðu ÍR-ingar muninn. Kristinn Rúnar gerði svo út um leikinn á 72. mínútu með góðu marki og því annar sigur 3. flokks í vikunni staðreynd.

2. flokkur karla. Fyrir leikinn á föstudag höfðu strákarnir í 2. flokki ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sínum í sumar og oft á tíðum verið afar óheppnir. Leikið var við lið Fjölnis á Fjölnisvelli í blíðskaparveðri. Grótta komst yfir snemma leiks með marki frá Viggó en Fjölnismenn svöruðu um hæl og staðan því 1-1. Leikurinn var svo í járnum þar til á 61. mínútu þegar Viggó skoraði sitt annað mark og Gróttustrákarnir því í vænlegri stöðu. Fjölnismenn náðu þó að jafna undir lok leiksins og endaði leikurinn því með jafntefli 2-2. Mikill hiti var í leikmönnum liðanna en hvorki meira né minna en átta gul spjöld fóru á loft í leiknum og eitt rautt en það var Atli Freyr Sveinsson sóknarmaður Gróttu sem fékk þann vafasama heiður.

Viggó gegn KR

Mynd: Viggó Kristjánsson skoraði bæði með 3.flokki og 2.flokki í vikunni. Hér er hann í bikarleiknum með meistaraflokki gegn KR um daginn

Mikið er framundan hjá yngri flokkum Gróttu næstu daga en um miðjan júlímánuð hefur Knattspyrnusambandið boðað sérstakt leikjafrí hjá yngri flokkum um allt land.

6. flokkur karla spilar í forkeppni Pollamóts KSÍ á þriðjudaginn í Kópavogi en þar eru strákarnir í riðli með ÍR, Val og HK. 5. flokkur karla spilar bæði við Aftureldingu og Leikni í næstu viku en stelpurnar í 5. flokki spila við Fram. 4. flokkarnir verða einnig á ferð og flugi en stelpurnar fara til Ísafjarðar á mánudag en strákarnir spila við KR í C-liði á mánudag en A- og B-liðin heimsækja Stjörnuna á miðvikudag. Strákarnir í 3. Flokki halda á Selfoss á þriðjudag og spila við Sunnlendinga bæði í A- og B-liði. Um næstu helgi fær 2. flokkur svo sameinað lið Austlendinga í heimsókn á Gróttuvöllinn. Að lokum má nefna að meistaraflokkur Gróttu heldur til Grenivíkur á þriðjudag til að spila við Magna. Þetta er síðasta leikur fyrri umferðar 2. deildarinnar en eins og staðan er í dag er Gróttuliðið í 2-3 sæti og því baráttan hörð um að komast upp í 1. deild!



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.