Knattspyrnudeild
Grótta þarf 1 stig til að komast í 1.deild
Knattspyrna - 2.deild karla
Á laugardaginn kemur verður 21. umferð Íslandsmóts 2. deildar karla leikin. Úrslitin geta ráðist í þessari umferð, bæði á toppi og botni deildar. Grótta leikur við Víði í Garðinu og þarf eitt stig til að tryggja sæti í 1.deild að ári. Með sigri getur liðið farið langleiðina með að tryggja sér titilinn í ár en þó fer það eftir úrslitum annarra leikja í umferðinni. En allir Gróttarar, nær og fjær, eru hvattir til að koma í Garðinn og styðja strákana til sigurs. Þetta er síðasti útileikurinn og nú þarf Grótta á stuðningi að halda. Leikurinn fer fram á laugardag og hefst kl. 12 í Garðinum! Allir að mæta! Áfram Grótta!

