Knattspyrnudeild

Uppskeruhátíð fótboltans á sunnudaginn

Knattspyrna - Yngri flokkar

24.9.2009

Sunnudaginn 27. sept verður uppskeruhátíð yngri flokka knattspyrnudeildar Gróttu haldin í Íþróttahúsinu. Hátíðin hefst kl. 16.00. Veitt verða verðlaun og viðurkenningar í öllum flokkum. Að verðlaunaafhendingu lokinni þá verður kökuhlaðborð í hátíðarsal Gróttu. Að venju þá koma kökurnar frá iðkendunum sjálfum. Þá sér hver iðkandi um að koma með eitthvað til að setja á hlaðborðið.

Skipulag þessa árs verður því svona: Iðkendur koma með eitthvað til að setja á kökuhlaðborðið. Stjórn deildarinnar sér síðan um drykki.

Mætum tímanlega með veitingarnar svo hátíðin geti hafist á réttum tíma.

Stjórn knattspyrnudeildar Gróttu



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.