Knattspyrnudeild
Gott mót hjá 6.flokki í Reykjaneshöllinni
Knattspyrna - 6.flokkur karla
Síðasta laugardag fór 6.flokkur karla á Sparisjóðsmót Keflavíkur í Reykjaneshöllinni. Grótta sendi einungis 2 lið til þátttöku en það var mikið um forföll í hópnum fyrir þetta mót. Lið 1 stóð sig vel í riðlinum þar sem þeir byrjuðu á því að vinna FH 2-1 eftir tvö flott mörk frá Vladó, næst spiluðu þeir við Njarðvík og unnu þar góðan 2-0 sigur.
Síðasti leikurinn í riðlinum var á móti Breiðablik en sá leikur endaði með markalausu jafntefli. Þá var komið að úrslitakeppninni en báðir leikirnir þar enduðu með jafntefli, fyrst 0-0 á móti Keflavík og svo 2-2 í hörku leik á móti FH 2. Þessi úrslit urðu til þess að við enduðum í 3.sæti og fóru strákarnir í gegnum mótið án þess að tapa leik.
Lið 2 byrjaði mótið af fullum krafti og sigraði fyrsta leikinn 6-0 en það var á móti Haukum. Næsti leikur var á móti Njarðvík og hann endaði með 3-0 sigri okkar manna. Strákarnir unnu líka síðasta leikinn í riðlinum en hann var á móti FH og var staðan 5-0 í leikslok. Glæsilegur árangur hjá strákunum í riðlinum en núna var komið að úrslitakeppninni. Fyrri leikurinn endaði 1-1 á móti Þrótti V. en þar sem Grótta skoraði á undan þá var okkur dæmdur sigur og strákarnir komnir með miða í úrslitaleikinn. Úrslitin þar réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum en þá skoraði Ingi Þór glæsilegt mark sem tryggði Gróttu 1-0 sigur á móti Víði Garði.
Þetta var frábær árangur hjá strákunum þar sem allir stóðu sig gríðarlega vel og voru félaginu til sóma.

