Knattspyrnudeild
Oddur í U-17 og Eiki í U-19
Knattspyrnudeild
Þessa dagana á Grótta tvo glæsilega fulltrúa á úrtaksæfingum yngri landsliða Íslands í knattspyrnu. Á dögunum tók Oddur Karl Heiðarsson, leikmaður 3. flokks, þátt í æfingum U-17 ára landsliðsins og um næstu helgi mun Eiríkur Ársælsson, leikmaður 2. flokks, æfa með U-19 ára liðinu.
Oddur er ekki alls ókunnugur úrtaksæfingum KSÍ en hann hefur verið valinn á úrtökumót á Laugarvatni í sínum aldursflokki síðustu tvö sumur. Oddur, sem leikur ýmist sem miðju- eða varnarmaður, er nú á eldra ári í 3. flokki en mun eflaust spila töluvert með 2. flokki á þessu tímabili.
Eiríkur er aftur á móti valinn í fyrsta skipti á úrtaksæfingar en hann hefur tekið miklum framförum á síðastliðnum tveimur árum. U-19 ára liðið skipa fjölmargir sterkir leikmenn en nokkrir þeirra hafa spilað leiki með meistaraflokki í úrvals- og 1. deild. Eiríkur, sem er sóknarmaður, er nú á miðári í 2. flokki og mun eflaust banka harkalega á dyrnar hjá meistaraflokki ef fram heldur sem horfir.
Þjálfari Odds og Eiríks er Sigurður Helgason sem nú er að hefja sitt fjórða starfsár hjá Gróttu.
Knattspyrnudeild Gróttu óskar strákunum til hamingju með valið og er þess fullviss að þeir séu verðugir fulltrúar félagsins í yngri landsliðum Íslands.


