Knattspyrnudeild

Séræfingar / tækniæfingar á laugardögum

Knattspyrna - yngri flokkar

10.11.2009

Á laugardögum í vetur verða séræfingar fyrir alla iðkendur yngri flokka í fótboltanum. Æfingar verða þannig uppbyggðar að tækni og boltameðerð verða í hávegum hafðar. Ekkert strit heldur einungis verið að vinna með boltann. Leikmenn meistaraflokks munu sjá um þessar æfingar í vetur og á laugardaginn munu þeir Grétar Ali Khan og Pétur Már Harðarson sjá um æfingarnar. Næsta laugardag þar á eftir koma aðrir tveir úr meistaraflokki en þeir munu skipta þessum æfingum á milli sín svo að krakkarnir fá tækifæri til að hitta og kynnast leikmönnum meistaraflokks og öfugt. Það er algjörlega frjáls mæting og æfingar eru fyrir stráka sem og stelpur. Hvetjum við stelpurnar sérstaklega til þess að koma. Það er okkar markmið að krakkarnir fái tækifæri til að æfa sig með boltann, bæta sig í tækni og jafnvel læra eitt og eitt “trix” í leiðinni.

Laugardagurinn 14.nóv:

09.00-09.50   -    7.fl,  6.fl og 5.flokkur karla og kvenna (1.-6.bekkur)

10.00-10.50      -   4.fl og 3.fl karla og kvenna (7.-10.bekkur)

Æfingarnar fara fram í íþróttahúsinu.

Það eina sem við gerum kröfu á er að krakkarnir komi með eigin bolta.  

Þar sem að við rennum blint í sjóinn með þetta þá komum við til með að prufa okkur áfram með fyrirkomulagið svo það gæti eitthvað breyst þangað til við finnum rétta taktinn.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.