Knattspyrnudeild

Pétur Már skrifar undir

18.12.2009

Pétur Már Harđarson hefur skrifađ undir tveggja ára samning viđ knattspyrnudeild Gróttu. Pétur er uppalinn Gróttumađur og hefur spilađ međ öllum yngri flokkum deildarinnar en einnig stoppađ viđ hjá Brřndby IF og KR.

Pétur Már, sem var á láni frá KR síđasta sumar, átti stóran ţátt í glćsilegum árangri meistaraflokks síđasta sumar en hann spilađi samtals 23 leiki og skorađi 7 mörk. Ađ auki spilađi hann 7 leiki og skorađi 3 mörk í Lengjubikarnum ţar sem Grótta landađi sigri í B-deild. Pétur getur leikiđ allar stöđur framarlega á vellinum, sem framherji, kantmađur eđa framliggjandi miđjumađur.

Knattspyrnuferill Péturs hófst strax í 7. flokki og spilađi hann upp alla yngri flokkana međ Gróttu. Hann var fulltrúi 4. flokks í knattspyrnuskóla KSÍ á Laugarvatni sumariđ 2003 og ári seinni var hann valinn á úrtaksćfingar U-16 ára landsliđsins. Í 3. flokki spilađi Pétur sína fyrstu meistaraflokksleiki og var ekki lengi ađ stimpla sig inn međ glćsilegum mörkum. Smám saman vann hann hug og hjörtu stuđningsmanna Gróttu sem gáfu honum viđurnefniđ gulldrengurinn, eđa "golden-boy" og hefur ţađ nafn haldist ć síđan.

Ţađ var ţví međ stolti sem Gróttumenn sáu á eftir Pétri til Danmerkur haustiđ 2006 ţar sem gamli Gróttuţjálfarinn Björgvin Finnsson hafđi komiđ honum ađ hjá danska stórliđinu Brřndby IF. Ţar dvaldist hann í tćpt ár og öđlađist mikla reynslu af ţví ađ spila međ efnilegustu knattspyrnumönnum Danmerkur. Pétur Már flutti aftur heim sumariđ 2007 og gekk ţá til liđs viđ KR. Ţar spilađi hann í rúmt ár, eđa ţar til hann sneri aftur heim í Gróttu í byrjun ţessa árs.

Knattspyrnudeildin fagnar ţví ađ hafa samiđ viđ ţennan mikilvćga leikmann og er ţess fullviss ađ hann muni hjálpa liđinu mikiđ í 1. deildinni nćsta sumar!

Pétur Már og Hilmar Sigurđsson, formađur knattspyrnudeildar, handsala samninginn.

Pétur og Hilmar

 Grótta vs. Tindastóll  Grótta - Tindastóll í maí síđastliđnum 

Frá opnunarleik gervigrasvallarins sumariđ 2006  Opnunarleikur gervigrasvallarins sumariđ 2006

 

 7. flokkur Gróttu sumariđ 1997                    

7. flokkur Gróttu á Lottómótinu sumariđ 1997. Á myndinni má ásamt Pétri finna Jón Kára Ívarsson efnilegasta leikmann 2. deildarinnar 2009, Gunnar Gunnsteinsson bassaleikara, Kjartan Ottósson fyrirliđa 3. flokks Gróttu sumariđ 2005 og Magnús Örn Helgason ţjálfara, kynni og markvörđ.

  

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síđu:



fotbolti3
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.