Knattspyrnudeild
Gróttustelpur keppa í Íslandsmótinu innanhúss
Knattspyrna - 3.fl. kvenna og 4.fl. kvenna
Helgina 8.-10. janúar spiluðu stelpurnar í 3.flokki og 4.flokki í Íslandsmótinu innanhúss en þar er spilað með Futsal reglunum. 3.flokkur spilaði sinn riðil í Vodafone höllinni en 4.flokkur spilaði sinn riðil hérna heima í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi.
Stelpurnar í 3.fl byrjuðu snemma á laugardeginum eða um 8:00.
Grótta - Þróttur R. 0-0
Gróttustelpurnar voru mikið betri í þeim leik og fengu mun hættulegri færi en voru mjög óheppnar að ná ekki að skora, leikurinn endaði 0-0.
Grótta - KR. 0-0
Það var mjög jafn leikur þar sem KR var meira með boltann en Grótta fékk betri og fleiri marktækifæri. Þessi leikur einkenndist af mikilli baráttu og það var lítið um færi, 0-0.
Grótta - Valur. 1-2
Það gerðist lítið í fyrra hálfleik, Valur aðeins sterkari og voru mikið með boltann en náðu ekki að búa sér til almennileg marktækifæri. Svo snemma í seinna hálfleik ná þær að skora 2 mörk með stuttu millibili. Eftir þetta þá tóku Gróttustelpurnar sig taki og náðu að skora fljótlega, laglegt mark hjá Steffu þar sem hún sólaði markmannin og lagði boltann í autt markið. Eftir þetta var mikil barátta og á lokasekúndunum þá nær Sóley að sóla tvo varnarmenn á hægri kantinum og nær góðu skoti á nærhornið sem markmaðurinn varði gríðarlega vel. Leikurinn endaði 2-1 og var þetta eina markið sem Valur fékk á sig á mótinu. Valur vann hina leikina 7-0, 4-0 og 3-0
Grótta - Fylkir. 2-2
Siðasti leikurinn var á móti Fylki, Fylkir byrjar betur og nær fljótlega að komast í 1-0. Gróttustelpurnar ná að sækja í sig veðrið eftir því sem líður á hálfleikinn. Svo þegar lítið er eftir þá fær Sigrún boltann á hægri kanti, nær að lyfta yfir varnarmann og tekur hann í svo á lofti í fyrsta og boltinn syngur í samskeytunum fjær, mark mótsins og 1-1 í hálfleik. Seinni hálfleikur var mjög jafn eins og sá fyrri en Grótta aðeins sterkari og um miðjan seinni hálfleik þá nær Sóley að skora mjög snyrtilegt mark. Eftir þetta pressar Fylkir stíft á okkar mark og ná að lokum að skora með góðu skoti fyrir utan teig, lokatölur 2-2
Stelpurnar enduðu í 3.sæti í riðlinum sem er frábær árangur þar sem þær hafa æft lítið sem ekki neitt í allan vetur.
Stelpurnar í 4.fl spiluðu á sunnudeginum hérna heima.
Grótta - KR. 0-2
Gróttustelpurnar stóðu sig mjög vel í þessum leik og börðust allan tímann. Þetta var frekar jafn leikur og bæði lið fengu færi til þess að skora en það var KR sem náði að nýta sín færi og sigruðu 2-0 að lokum.
Grótta - HK. 0-6
Þessi leikur byrjaði ágætlega en endaði ekki vel fyrir okkar stelpur. Það var 0-2 í hálfleik. Svo í seinni hálfleik þá vantaði alla baráttu í þær og HK stelpurnar áttu ekki í vandræðum með að skora 4 mörk í seinni hálfleik.
Grótta - KFR. 0-1
Eftir leikinn á móti HK voru stelpurnar ákveðnar í því að standa sig betur í þessum leik. Það var líka allt annað að sjá til þeirra. Þvílík barátta og þær gáfu KFR stelpunum ekkert eftir. Bæði lið fengu færi til þess að skora en KFR náði að pota einu inn í lok fyrri hálfleiks. Leikurinn endaði svo 0-1 sem voru frábær úrslit miðað við það að KFR vann riðilinn nokkuð auðveldlega eftir að hafa unnið hina leikina 5-1 og 4-0.
Ágætis árangur hjá stelpunum og gott að enda þetta á svona góðri frammistöðu. Þess má til gamans geta að stelpurnar töpuðu á móti sama KFR liði 11-0 í Íslandsmótinu innanhúss á síðasta ári.
Frábær helgi hjá Gróttustelpunum að baki þar sem allar voru félaginu til sóma innan sem utan vallar.

