Knattspyrnudeild

4.fl.kvenna á Goðamótinu

Knattspyrna - 4.fl.kvenna

29.1.2010

Síðustu helgi fóru 17 stelpur úr 4.fl kvenna norður á Akureyri til þess að taka þátt í Goðamótinu. Grótta sendi 2 lið sem spiluðu í B og C - liða keppni.

Á föstudeginum spilaði B - liðið tvo leiki á móti Þór og Magna. Eftir 4-1 tap á móti Þór þá spiluðu stelpurnar gríðarlega vel á móti Magna og unnu þann leik 2-0 með góðum mörkum frá Helgu Völu og Tinnu.
C - liðið spilaði bara einn leik á föstudeginum og var sá leikur á móti Fjölni. Þessi leikur var mjög jafn og fengu Gróttustelpurnar nokkur færi til þess að skora og áttu m.a. skot í slá en Fjölnir náði að skora eina mark leiksins sem endaði 0-1. Svekkjandi tap þar sem stelpurnar áttu meira skilið.

Á laugardeginum var mikið prógram hjá öllum stelpunum. Það var farið í ísbíltúr í Brynju og svo var farið á kvöldvöku seinna um kvöldið, ásamt því að bæði lið spiluðu 3 leiki.

Fyrsti leikur C - liðsins á laugardaginn var á móti Þór. Aftur var þetta mjög jafn leikur og eftir að fengið nokkur færi til þess að komast yfir í leiknum þá náði Þór að skora 3 mörk á síðustu 5 mínútum leiksins sem endaði 3-0. Aftur svekkjandi tap fyrir stelpurnar því með smá heppni hefðu þær getað fengið miklu meira úr þessum leik. Svo áttu þær erfiða leiki á móti Völsung og Breiðablik sem töpuðust báðir. Svo á sunnudeginum spiluðu þær við Þrótt R. og eftir að hafa lent 2-0 undir þá komst Bryndís ein á móti markmanni og skoraði gott mark. Svo rétt fyrir leikslok þá komst Bryndís aftur í ágætis færi en gott skot hennar endaði í stönginni og niðurstaða 2-1 tap. Enn og aftur gríðarlega svekkjandi tap fyrir stelpurnar.  Frábært samt að enda mótið á jákvæðri frammistöðu og með smá heppni hefðu þær hæglega getað unnið tvo, jafnvel þrjá sigra.

B - liðið byrjaði laugardaginn á því að sigra Tindastól 3-1 með flottum mörkum frá Birnu, Helgu Völu og Tinnu. Frábær barátta í stelpunum sem skilaði góðum sigri. Þessi sigur dugði til þess að komast í svokölluð B - úrslit, þar vannst mjög góður 2-1 sigur í undanúrslitum á móti HK og stelpurnar komnar í úrslitaleik í B - úrslitum á móti Magna.

Úrslitaleikurinn var spilaður á sunnudeginum. Þar lentum við undir í byrjun leiks eftir smá einbeitingarleysi í vörninni, eftir þetta vöknuðu stelpurnar og tóku öll völd á vellinum og leikurinn fór nánast bara fram á vallarhelmingi Magna. Þrátt fyrir frábæra frammistöðu og gríðarlega baráttu þá náðist ekki að skapa nein almennileg dauðafæri heldur bara nokkur hálffæri. Því miður dugði það ekki til þess að skora og tapaðist leikurinn 1-0. Engu að síður var þetta frábær árangur hjá stelpunum þar sem þær unnu 3 leiki og töpuðu 3 leikjum.

Svo á laugardagskvöldið var kvöldvaka þar sem stelpurnar kepptu í hinum ýmsu íþróttagreinum.
Stelpurnar lentu í öðru sæti í boðhlaupi en töpuðu í fyrstu umferð í reipitoginu. Í vítakeppninni mynduðu Bryndís og Helga Vala magnað teymi þar sem Helga Vala var vítaskytta og Bryndís vítabani. Þær fóru alla leið í úrslitinn þar sem þær töpuðu naumlega.

 

Góð og skemmtileg helgi að baki hjá stelpunum þar sem allar stóðu sig vel og voru félaginu til sóma.


Hér að neðan má sjá myndir af mótinu:

4.fl.kvenna - Goðamót

4.fl.kvenna - Goðamót Jórunn

4.fl.kvenna - Goðamót Sylvía

4.fl.kvenna - Goðamót Tinna

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.