Knattspyrnudeild
Bjarni Jakob og Garðar endurnýja samninga sína
Knattspyrna - Mfl. karla
Bjarni Jakob Gunnarsson og Garðar Guðnason hafa skrifað undir áframhaldandi samning við knattspyrnudeild Gróttu.
Bjarni Jakob byrjaði að æfa knattspyrnu með Gróttu þegar hann var 4 ára og spilaði með yngri flokkum félagsins. Bjarni Jakob fór síðan yfir í KR og æfði og spilaði með meistaraflokki þeirra, m.a. var hann með liði KR þegar þeir spiluðu í Færeyjum í meistari meistaranna undir stjórn Willums Þórssonar. Bjarni Jakob spilaði einnig í meistaraflokki Fjölnis og síðan lá leiðin aftur á heimaslóðir í Gróttu árið 2005 þegar Grótta spilaði í 3.deildinni.
Bjarni Jakob hefur verið einn af lykilleikmönnum Gróttu og áframhaldandi samningur við hann mun styrkja liðið fyrir næstu leiktíð í 1. deildinni.
Garðar Guðnason byrjaði að spila knattspyrnu með 5. flokki Gróttu 11 ára gamall. Hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Gróttu árið 2002.
Garðar var valinn leikmaður ársins hjá knattspyrnudeild Gróttu árið 2005 og hefur í tvígang verið tilnefndur til Íþróttamanns Seltjarnarnes. Garðar hefur spilað yfir 100 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu. Garðar er uppalinn leikmaður hjá Gróttu og er mjög mikilvægur fyrir liðið og stuðningsmenn Gróttu. Garðar hefur leikið stórt hlutverk í frábærum árangri meistarflokks Gróttu undanfarin ár.
Áframhaldandi samningur við Garðar er mikilvægur liður í áætlun Gróttu að styrkja liðið fyrir næstu leiktíð í 1. deildinni.
Birgir Hákonarson og Jón Sigurðsson stjórnarmenn ásamt Garðari Guðnasyni við undirskrift samningsins
Birgir Hákonarson og Jón Sigurðsson stjórnarmenn ásamt Bjarna Jakobi Gunnarssyni við undirskrift samningsins.

