Knattspyrnudeild
Sigur gegn ÍH í æfingaleik
Mfl.karla - knattspyrna
Meistaraflokkur Gróttu í knattspyrnu er á fullu í undirbúningi fyrir 1.deildina í sumar. Nokkrir leikmenn hafa bæst við hópinn en á sama tíma hefur verið skorið niður í fjölda leikmanna og við það hefur hópurinn orðið þéttari og meiri samkeppni um stöður. Þann 22. febrúar hefst Lengjubikarinn með leik gegn Keflavík en Grótta leikur nú í A-deildinni í þeirri keppni. En strákarnir léku æfingaleik við ÍH í kvöld og leiknum lyktaði með 5-1 sigri Gróttu. Mörkin skoruðu þeir Ásgrímur Sigurðsson, Sölvi Davíðsson, Magnús B.Gíslason, Steindór Oddur Ellertsson (á reynslu) og Viggó Kristjánsson. Grótta lék með tvö lið í kvöld, sem að deildu 90 mínútunum á milli sín. Á laugardag leikur liðið svo við Grindavík á Gróttuvelli kl 11.30.
Mynd: Viggó Kristjánsson skoraði í kvöld

