Knattspyrnudeild
Sigur á Grindavík í æfingaleik
Knattspyrna - mfl.karla
Grótta sigraði úrvalsdeildarlið Grindavíkur 2-1 fyrr í dag á Gróttuvellinum. Þeir Sölvi Davíðsson og Steindór Ingi Ellertsson skoruðu mörk Gróttu. Leikurinn fór fram við frábærar aðstæður í dag, logn og rigning. Gróttumenn hófu leikinn með látum og pressuðu gestina vel. Sölvi skoraði svo fyrsta markið eftir góðan undirbúning Magnúsar Gíslasonar en Grindvíkingar jöfnuðu með marki úr vítaspyrnu rétt fyrir hálfleik. Staðan því 1-1 í hálfleik. Grótta hélt áfram að pressa og uppskáru mark eftir góða skyndisókn en Dan Howell, leikmaður frá USA sem er á reynslu, lagði boltann útá Steindór sem að skoraði með góðu skoti.
2-1 því lokatölurnar í dag og góð úrslit fyrir Gróttu.
Byrjunarlið Gróttu:
Kjartan
Enric, Bjarni Jakob, Ólafur Páll, Ali
Ásgrímur, Knútur, Pétur Már
Garðar, Magnús, Sölvi
Varamenn sem komu inná: Steindór Oddur, Sigurður G, Einar Óli, Hafsteinn, Arnar Freyr, Dan Howell.
Mynd: Sölvi Davíðss skoraði fyrra markið í dag

