Knattspyrnudeild

5.flokkur karla lenti í 3.sæti á Íslandsmótinu innanhúss

Knattspyrna - 5.fl. karla

15.2.2010

Strákarnir í 5.flokki komust uppúr riðlinum sínum í undankeppninni og spiluðu í úrslitakeppninni síðasta sunnudag í Laugardalshöllinni.

Eftir að hafa sigrað fyrstu tvo leikina nokkuð örugglega á móti Dalvík og Geisla þá var síðasti leikurinn í riðlinum á móti erfiðum andstæðingum KR. Þar náðu strákarnir sér engan veginn á strik og töpuðu 2-0. Strákarnir lentu í 2.sæti í riðlinum og voru komnir í undanúrslitin á móti Breiðablik. Þar þurftum við að sætta okkur við 1-0 tap í gríðarlega jöfnum leik. Í hinum undanúrlsitaleiknum töpuðu KR á móti Val, þá var ljóst að við áttum annan leik við KR og nú um 3.sætið. Strákarnir voru staðráðnir í að gera betur núna og þeir sýndu það inná vellinum. Þeir voru miklu grimmari og spiluðu mikið betri fótbolta heldur en í fyrri leiknum, þessi barátta og leikgleði skilaði góðum 1-0 sigri og strákarnir náðu 3.sætinu.

Glæsilegur árangur hjá strákunum í 5.flokki sem stóðu sig frábærlega á mótinu.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.