Knattspyrnudeild
3.flokkur karla endaði í 5. - 6. sæti í Íslandsmótinu innanhúss
Knattspyrna - 3.fl. karla
Strákarnir í 3.flokki komust líka uppúr sínum riðli og spiluðu einnig í úrslitakeppninni síðasta sunnudag.
Það byrjaði ekki vel og eftir að hafa tapað fyrsta leiknum 1-0 þá tóku þeir sig á í næsta leik og sigruðu örugglega 4-0. Þriðji og síðasti leikurinn í riðlinum var á móti Snæfellsnesi þar sem strákunum dugði jafntefli til að komast uppúr úr riðlinum og í undanúrslitin. Eftir að hafa komist fljótlega í 1-0 og sýnt mikla yfirburði snemma leik virtist allt stefna í öruggan sigur okkar manna en rétt fyrir hálfleik nær Snæfellsnes að jafna gegn gangi leiksins. Seinni hálfleikur var aðeins jafnari en sá fyrri og það var lítið um færi. Þegar um 10 sekúndur eru eftir að leiknum þá nær Snæfellsnes góðri sókn og þeir ná að búa til gott skotfæri þegar um 2 sek. eru eftir, þar ná þeir skora glæsilegt mark með góðu skoti og um leið og boltinn endar í netinu þá klárast leikurinn. Grátlegt 2-1 tap og strákarnir misstu af öðru sætinu í riðlinum og þar af leiðandi af undanúrlsitunum. Þetta þýddi að við kepptum um 5 sætið þar sem við gerðum 2-2 jafntefli við HK í jöfnum og vel spiluðum leik.
Gríðarlega svekkjandi að vera 1 sekúndu frá undanúrslitunum en samt sem áður var þetta mjög góður árangur hjá strákunum. Þess má til gamans geta að í undankeppninni þá sigruðu strákarnir Fylki sem varð svo Íslandsmeistari.

