Knattspyrnudeild
KR - Grótta í dag kl. 16.00
Knattspyrna - mfl.karla
KR-ingar taka á móti liði Gróttu í Lengjubikarnum nú í dag. Leikurinn hefst kl. 16.00 og fer fram á gervigrasvelli KR. KR-ingar léku gegn Breiðablik á föstudaginn en töpuðu 0-2. Nokkur skörð eru hoggin í lið Gróttu en þó nokkrir leikmenn verða fjarverandi vegna meiðsla, veikinda og barneigna, en Sigurvin Ólafsson eignaðist í gær sitt annað barn og óskar Grótta honum innilega til hamingju með það! Það verða því einir 5-6 leikmenn úr 2.flokki félagsins í leikmannahópi liðsins í dag. Dýrmæt reynsla fyrir þá að mæta sterku liði KR. Leikurinn hefst kl. 16.00.

