Knattspyrnudeild

Naumt tap gegn KR

Knattspyrna - mfl.karla

19.4.2010

Gróttumenn sóttu KR-inga heim í gærdag í blíðskaparviðri er liðin léku síðasta leikinn í riðlakeppni Lengjubikarsins. Leikurinn fór fram á gervigrasvelli KR. Gróttumenn stilltu upp frekar ungu liði gegn öflugu og reynslumiklu liði KR. Ljóst var frá upphafi að Grótta yrði í miklu varnarhlutverki enda KR ingar með eitt besta lið landsins. Gróttuvörnin hélt vel og lengi en í seinni hluta fyrir hálfleiks náðu KR-ingar loks að brjóta öflugan varnarmúrinn en þá slapp Björgólfur Takefusa í gegn og setti boltann yfir Kjartan markvörð. Í hálfleik var staðan 1-0 fyrir heimamenn.

KR-ingar héldu áfram uppteknum hætti og sóttu stíft en Gróttumenn vörðust vel. Þó var lítið hægt að gera í öðru marki KR en Viktor Bjarki Arnarson smellti boltanum í vinkilinn eftir hornspyrnu. Virkilega vel gert hjá Viktori.

Stuttu eftir markið var illa brotið á Garðari Guðnasyni útá hægri vængnum. Garðar fékk boltann skallaði hann framhjá Diogo, varnarmanni KR, en Diogo lyfti upp annari löppinni og setti takkana beint í andlitið á Garðari. Garðar lá óvígur eftir og var fluttur á slysadeildina í kjölfarið. Ljótur skurður á efri vör og aðrir tveir fyrir ofan og neðan annað augað og mesta mildi að öll bein sluppu ósködduð. Um 15 spor voru saumuð í andliti Garðars og er hann á batavegi. Brot Diogo var ekki viljaverk og bað hann Garðar afsökunar oftar en einu sinni sem og eftir leik. Garðar verður vonandi klár í slaginn sem allra allra fyrst.

En strákarnir náðu að setja smá pressu á KR undir lokin og það var svo Thiomir, leikmaður 2.flokks, sem að náði að skora mark eftir hornspyrnu. Staðan því 2-1 en Gróttumenn náðu ekki að nýta sér liðsmuninn í nyt og jafna leikinn.

En Gróttumenn sýndu mikla baráttu í gær og sýndu mótherjanum enga virðingu. Ágætis úrslit gegn mjög sterku liði KR.

Þess má geta að tveir leikmenn léku sinni fyrsta meistaraflokksleik í gær en það voru þeir Jóhann Páll Ástvaldsson úr 2.flokki og Oddur Karl Heiðarsson úr 3.flokki. Óskum þeim til hamingju með þennan áfanga!

Byrjunarlið Gróttu:

Kjartan
Hrafn Jónsson, Agnar Sigurjónsson, Hafsteinn Bjarnason, Einar Bjarni Ómarsson
Garðar Guðnason, Ásgrímur Sigurðsson, Bragi Árnason, Viggó Kristjánsson, Pétur Már Harðarson
Dan Howell

Varamenn sem að komu inná: Jóhann Páll Ástvaldsson, Thiomir Drobnjak, Sigurður Guðmundsson, Ólafur Páll Johnson, Oddur Karl Heiðarsson.
Ónotaðir varamenn: Eiríkur Ársælsson og Magnús Örn Helgason.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.