Knattspyrnudeild

Gróttu spáð 11. sæti í 1. deildinni - Umfjöllun og viðtal

30.4.2010

Nú styttist óðum í að Íslandsmótið í knattspyrnu hefjist en sunndaginn 9. maí koma ÍR-ingar í heimsókn á Gróttuvöll í opnunarleik deildarinnar. Mest lesna fótboltasíða landsins, Fótbolti.net, spáir Gróttu 11. sæti í 1. deildinni í sumar. Þjálfarar og fyrirliðar liðanna í deildinni spáðu í spilin og gáfu liðunum (öðrum en sínu eigin) stig frá 1-11. Eins og áður sagði er okkar mönnum spáð næst síðasta sæti deildarinnar, vel fyrir ofan lið Njarðvíkur og rétt fyrir neðan ÍR. Hér á eftir verður gripið niður í umfjöllun Fótbolta.net um lið Gróttu fyrir sumarið 2010.

„Þetta hefur verið margra ára vinna. Það hefur margt breyst síðan ég mætti út á Nesið í eitthvað malar-rugl með enga bolta og ekki nokkurn skapaðan hlut. Það er klárlega uppgangur á Nesinu,“ sagði Ásmundur Haraldsson, þjálfari Gróttu, eftir að liðið tryggði sér sigur í 2.deildinni í fyrra.

Það er ekki hægt að neita því að uppgangurinn hafi verið mikill hjá Gróttumönnum sem fyrir nokkrum árum dvöldu í 3.deildinni. Framþróunin hefur líka verið mikil utan vallar. Aðstaða félagsins hefur stökkbreyst undanfarin ár og það er hægt og bítandi að mjakast frá skugganum af nágrönnum sínum.

Mikið mun mæða á reynsluboltunum Kristjáni Finnbogasyni í markinu og Sigurvin Ólafssyni á miðjunni sem eru klárlega tveir af bestu leikmönnum deildarinnar. Mikilvægt er að þeir haldist heilir en mörg lið væru til í að hafa þá í sínum röðum.


  Grotta-meistarar3                                                   Gretar_Ali_Khan_vid_undirritun

 

Gróttumenn hafa náð að styrkja sig talsvert. Grétar Ali Khan fann sig engan veginn í Víkingi og er kominn aftur, Ólafur Páll Johnson er kominn frá Fjölni og Knútur Rúnar Jónsson frá Víkingi. Í sóknina eru mættir Magnús Bernhard Gíslason frá KV og Daniel Howell frá Bandaríkjunum. Báðir eru nánast óskrifað blað en mikilvægt er fyrir Gróttu að allavega annar þeirra verði í stuði í sumar. Magnús skoraði eins og enginn væri morgundagurinn í 3.deildinni í fyrra.

Það er stórt skref frá 2.deild upp í þá fyrstu en Grótta hefur nóg af leikmönnum sem hafa leikið í þessum styrkleika og ofar. Liðið hefur á fínu byrjunarliði á að skipa og hefur í sínum röðum leikmenn á borð við Sölva Davíðsson. Lítið má hinsvegar út af bregða því gæðin utan fyrstu ellefu eru ekki nægileg.

Gróttu gekk illa í Lengjubikarnum, hafnaði í neðsta sæti í sínum riðli. Liðið var með þremur öðrum 1.deildarliðum í riðli og tapaði öllum leikjunum gegn þeim. Það hefur væntanlega stór áhrif á að Gróttu sé spáð falli úr 1.deild í sumar af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar.

Styrkleikar: Kristján hlýtur að teljast besti markvörður deildarinnar og þá er mikill styrkur ef Sigurvin helst heill. Byrjunarliðið er fínt. Meðbyrinn ætti líka að geta hjálpað Gróttumönnum en ágætis stemning er á Seltjarnarnesinu þar sem uppgangur félagsins hefur verið hraður síðustu ár. Liðið leikur á gervigrasi á heimavelli sem gæti hjálpað.

Veikleikar: Grótta hefur sjaldan náð að stilla upp sínu sterkasta liði á undirbúningstímabilinu, breytingarnar hafa verið miklar milli leikja. Það er ókostur og spurning hvernig liðið mætir samstillt til leiks. Breiddin er ekki mikil og liðinu hefur vegnað illa á undirbúningstímabilinu sem hjálpar ekki.

Þjálfari - Ásmundur Haraldsson (fæddur 1975):

Ásmundur hefur þjálfað Gróttu í nokkur ár en hann hefur náð þeim glæsilega árangri að vinna félagið úr 3.deild upp í 1.deild á síðustu þremur árum. Hann var valinn þjálfari ársins í 2.deild í fyrra eftir að hafa hampað fyrsta sæti deildarinnar. Ásamt því að þjálfa meistaraflokk Gróttu er Ásmundur yfirþjálfari yngri flokka félagsins. Knattspyrnuferill Ásmundar hófst á Seltjarnarnesinu en einnig lék hann með liðum á borð við FH, ÍR og KR.


Lykilmenn: Kristján Finnbogason, Sigurvin Ólafsson og Sölvi Davíðsson.

Fylgist með: Pétur Már Harðarson er sóknarsinnaður leikmaður fæddur 1989. Hann er uppalinn hjá Gróttu, hefur flotta tækni og á það til að skemmta áhorfendum með laglegum tilþrifum. Var um skeið í herbúðum KR auk þess að hann lék með unglingaliði Bröndby í Danmörku.

Fyrstu þrír leikir sumarsins:
ÍR (heima), KA (úti) og HK (heima)

 
 

Eftir að spáin var kunngjörð sagði Ásmundur þetta í viðtali við síðuna:

 
,,Það er ekkert á dagskrá að fara aftur með Gróttuliðið í 2.deild. Stefnan er sú að tryggja liðinu sæti í 1.deild og tryggja félaginu stöðugleika þar,"
 
Í efstu deild áður en áratugurinn er liðinn:
Grótta vann aðra deildina í fyrra og leikur í fyrsta skipti í fyrstu deild í ár en Ásmundur segir að spáin komi ekki á óvart.

,,Nei í sjálfu sér ekki. Við erum nýliðar í deildinni, erum þar í fyrsta skipti í sögu félagsins, höfum átt erfitt uppdráttar í Lengjubikarnum og því ekkert óeðlilegt að okkur sé spáð þessu sæti. Það er bara okkar að sjá til þess að hún rætist ekki."

,,Við stefnum á að tryggja félaginu sæti í þessari deild, byggja ofan á það og tryggja félaginu stöðugleika. Við síðan stefnum að sjálfsögðu eins hátt og hægt er að fara með félagið. Við erum að koma okkur úr því umhverfi sem að félagið hefur verið í síðastliðin 40 ár og yfir í það sem að telst eftirsóknarvert í íslenskum fótbolta."

,,Við sem að erum að taka þátt í þessu núna hjá Gróttu, þjálfarar hjá félaginu, leikmenn og stjórnarmenn, erum að búa félaginu grundvöll til frekari afreka á næstu árum og vonandi náum við því takmarki að fara með félagið í úrvalsdeild áður en áratugurinn er liðinn. "

Grótta hefur fengið nokkra leikmenn í vetur og styrkt sig frá því á síðasta tímabili.

,,Ég er ánægður með þá viðbót sem að okkur hefur tekist að fá. Allt eru þetta strákar sem að smellpassa inní hópinn og koma til með að gefa liðinu þá breidd sem að við þurfum á að halda. Það hafa orðið miklar breytingar á hópnum frá því í fyrra og einhverjir 11 leikmenn sem komu við sögu síðasta sumar eru farnir annað eða hættir. Við höfum fengið eina 8 leikmenn í staðinn og það getur tekið sinn tíma að láta liðið smella saman. En hvað varðar breiddina með alla leikmenn heila þá tel ég okkur vera með öflugan hóp sem að getur gert ágætis hluti í sumar."
 
         Meistaraflokkur í æfingaferð á Spáni                                    Grotta_-_Njardvik_2    
 
Howell gæti skoraði 25 eða 2 mörk:
Á meðal þeirra leikmanna sem hafa komið er bandaríski framherjiinn Daniel Howell. Eru gerar miklar væntingar til hans?

,,Já og nei. Þetta er 23 ára strákur sem að hefur eingöngu spilað háskólafótbolta og eitt tímabil í NPSL deildinni í Bandaríkjunum og hefur ekki mikla reynslu. Aftur á móti hefur hann heilan helling fram að færa og ef honum gengur vel að aðlagast fótboltanum, lífinu hérna og þess háttar þá gæti hann þess vegna skorað 25 mörk. En kannski bara 2."

,,Það sama gildir um Magnús Gíslason, sem kom til okkar frá KV. Hann er frábær slúttari og góður á boltann og það er það sama með hann, hann getur vel skorað 15-20 mörk en kannski bara 5. En þeir fá sín tækifæri því ég hef fulla trú á þeir geti klárað sín færi fyrir okkur í sumar."



Grótta lék í þriðju deildinni árið 2007 og liðið hefur því farið hratt upp í fyrstu deild. Ásmundur segir þó að það séu ekki miklar breytingar á æfingaáherslum frá því á síðasta tímabili.

,,Í sjálfu sér ekki. Það eru ákveðnar leiðir sem að maður hefur verið að fara í þessu og hvort að þær dugi í baráttuna í 1.deildinni verður að koma í ljós. Maður er alltaf að læra og maður hefur lært mjög mikið á síðustu 2-3 árum hvað undirbúningstímabilið varðar. Maður treystir leikmönnunum fyrir ákveðnum verkefnum enda orðnir fullorðnir menn og stundum virkar það og stundum ekki. Menn eru misjafnir í þessu og sumir eiga auðveldara með það en aðrir."

,,Það að fara með félag úr 3.deild í þá fyrstu á nánast sama mannskapnum gerir það að verkum að ekki er hægt að breyta öllu á einni nóttu. Liðið hefur yngst töluvert þó svo að það séu ákveðnir póstar sem að halda uppi meðalaldrinum en heilt yfir hefur það yngst. En heilt yfir þá eru strákarnir samviskusamir og tilbúnir til að leggja mikið á sig til að klára verkefnið."

,,Menn þurfa núna í fyrsta skipti, sumir hverjir, að átta sig á því að það þarf að færa miklar fórnir fyrir félagið og liðið. Það er bara hluti af ferlinu, menn ýmist geta aðlagast eða ekki. Þar með á sér stað endurnýjun innan hópsins og þeir sem að eru virkilega tilbúnir til að fórna miklu halda áfram og halda velli."


Kristján og Sigurvin með fálkahjartað á réttum stað:
Hluta af góðu gengi Gróttu í fyrra má þakka því að reynsluboltarnir Kristján Finnbogason og Sigurvin Ólafsson léku með liðinu og stóðu sig báðir mjög vel. Sigurvin var valinn leikmaður ársins í annarri deildinni og Kristján var í liði ársins. Þeir voru báðir eftirsóttir í lok tímabilsins.

,,Jú eitthvað var kroppað í vetur enda engin furða. Tveir frábærir fótboltamenn. En þeir eru með fálkahjartað á réttum stað og vilja tryggja Gróttuliðinu sess í 1.deildinni," sagði Ásmundur sem segir að það sé þýðingarmikið að hafa haldið þessum reynsluboltum hjá félaginu.

,,Jú jú að sjálfsögðu skiptir það máli. Þeir eru báðir frábærir fótboltamenn og ég veit að það eru mörg lið sem að vilja hafa þá í sínu liði. Við erum mjög lánsamir að hafa þá báða hjá okkur. Að sama skapi skiptir það höfuðmáli að allir leikmennirnir nái sér á strik í sumar, ekki bara þeir. Við vinnum enga leiki bara með þá tvo í standi. Menn þurfa að vinna fyrir liðið. Við erum með góðan hóp og séu þeir frá einhverra hluta vegna þá er ég með aðra leikmenn sem að geta leyst þau verkefni sem þarf að leysa."

Ásmundur hefur sjálfur leikið með Gróttu undanfarin ár en í fyrra spilaði hann fjóra leiki og skoraði tvö mörk. Mun Ásmundur spila með Gróttu í fyrstu deildinni í sumar?

,,Tja...Ég æfi með eins og ég get en það er ekkert á dagskránni að ég spili. Ég er með fullt af góðum leikmönnum sem að eru miklu betri en ég og í miklu betra standi en ég. Skórnir fara samt alltaf með í leiki."
,,Ég nota öll trixin í bókinni til að skilja menn eftir svo það losni pláss á bekknum. Rútan fer alltaf á settum tíma t.d. og þeir sem að eru seinir verða bara að koma sér sjálfir eða vera heima. Að vísu annað mál ef að markmaðurinn er ekki kominn. Svo „gleymi“ ég stundum leikmönnum. Sorrí Garpur! En án Gríms þá vona ég að ég geti bara verið í jakkaseglunum á hliðarlínunni í góðlátlegum samræðum við dómara og aðstoðardómara á leikjum í sumar,"
sagði Ásmundur léttur í bragði að lokum.
 
 
Heimasíðan þakkar aðstandendum Fótbolta.net kærlega fyrir lánið á greinunum.

                          Grotta-meistarar2
 





 


Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.