Knattspyrnudeild
Hver er Dan Howell?
Eins og flestir Gróttumenn vita gekk Bandaríkjamaðurinn Dan Howell til liðs við félagið fyrr í vetur. Þá hafði hann sett sig í samband við fyrrverandi þjálfara sinn Ásmundur Haraldsson, þjálfara meistaraflokks, sem bjó í Bandaríkjunum um nokkurra ára skeið við nám og störf. Heimasíðan náði tali af Dan og spurði hann spjörunum úr en viðtalið má sjá hér að neðan í íslenskri þýðingu.
Jæja Dan, best að byrja á klassískri spurningu - ,,How do you like Iceland?''
Ísland er fallegt land og ég er mjög glaður að hafa komið hingað. Landslagið er ótrúlegt og engu líkt því sem ég hef áður séð. Nú býð ég bara eftir að það hitni aðeins og þá verður þetta frábært.
Segðu okkur aðeins frá sjálfum þér. Hvaðan kemurðu og hvar hefurðu verið að spila fótbolta undanfarin ár?
Ég kem frá litlum bæ sem heitir Erie og er í Pennsylvaniufylki í Bandaríkjunum. Þar búa rúmlega 100 þúsund manns og tekur um 45 mínútur að keyra yfir landamærin til Kanada. Undanfarin ár hef ég spilað fyrir liðið mitt í Gannon háskóla en eitt sumar spilaði ég með Erie Admirals í 3. deildinni í Bandaríkjunum.
Hvað kemur til að ungur Bandaríkjamaður kemur alla leið til Íslands til að spila fótbolta í 1. deild?
Ég ákvað að fara til Íslands til að taka ferilinn á næsta stig og leita að nýjum tækifærum í fótboltanum. Mig langaði að prófa eitthvað alveg nýtt og spennandi og held að það sé að ganga eftir. Gæði fótboltans hér í 1. deildinni verður alveg nýtt fyrir mér en ég er viss um að ég verði fljótur að aðlagast og muni standa mig vel.
Ertu ánægður með hvernig félagið og fólkið í kringum það hefur tekið á móti þér?
Félagið hefur tekið frábærlega á móti mér og látið mér líða eins og hluta af fjölskyldunni. Það er eins með strákana í liðinu, þeir hafa allir tekið mér vel en það hefur auðveldað mér mikið að flytja hingað frá Bandaríkjunum.

Hvernig er íslenskur fótbolti í samanburði við það sem þú hefur kynnst í Bandaríkjunum?
Fótboltinn hérna er mjög frábrugðin þeim sem spilaður er í háskólaboltanum heima. Hér virðast allir hafa mikla hæfileika og skilja leikinn ótrúlega vel. Heima spila margir góðir leikmenn en einhvern veginn virðist þá skorta leikskilning. Ég reyni að læra eins mikið og ég get af strákunum og Ása og geri mitt besta til að læra nýja hluti í æfingum og í leikjum.
Þú fórst með liðinu í æfingaferð til Spánar um páskana. Fannst þér ferðin skila miklu fyrir liðið?
Að fara til Spánar í æfingaferð var frábær reynsla. Það skipti sköpum fyrir nýjan leikmann eins og mig að kynnast strákunum og ná að komast inn í stemninguna í liðinu. Ég held að ferðin hafi verið mjög gagnleg fyrir liðið - að fá að æfa tvisvar á dag við einstakar aðstæður og spila leiki við góð lið.
Hvernig heldurðu að Gróttu muni ganga í 1. deildinni í sumar?
Það er erfitt fyrir mig að spá fyrir um gengi liðsins í sumar af því að ég er algjörlega nýr í liðinu og í íslenskum fótbolta. Okkur er spáð 11. sæti í deildinni en ég er nokkuð viss um að við getum gert mun betur en það í sumar. Það sem við getum gert er að gefa okkur alla í leikina sem við spilum og ef það tekst munum við standa okkur vel.
Eitthvað að lokum?
Hlakka bara til að sjá sem flesta á vellinum næsta sunnudag!
Heimasíðan þakkar hinum geðþekka Dan kærlega fyrir spjallið. Tökum einnig undir orð þessa knáa framherja og hvetjum alla til að mæta á völlinn næstkomandi sunnudag þegar Grótta tekur á móti ÍR í fyrsta leik félagsins í 1. deild!

