Knattspyrnudeild

Þá er loksins komið að því - 1. deildin er að hefjast

Knattspyrna - Mfl. karla

7.5.2010

Kæra Gróttufólk!

Á sunnudaginn kl. 14:00 á Gróttuvelli tekur meistaraflokkur Gróttu á móti liði ÍR úr Breiðholti í fyrstu umferð 1. deildarinnar í fótbolta. Eins og allir Seltirningar og aðrir Gróttumenn ættu að vita sigraði Grótta 2. deildina í fyrra með glæsibrag og tryggði þar með sæti í 1. deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. Það verður því stór stund á sunnudag þegar leikurinn verður flautaður á og auðvitað gríðarlega mikilvægt að sem allra felstir leggi leið sína á völlinn og styðji strákana til sigurs.

Gróttu og ÍR var spáð svipuðu gengi í neðri hluta 1. deildarinnar í sumar en bæði lið áttu erfitt uppdráttar í Lengjubikarnum. Leikur liðanna í þeirri keppni var hnífjafn en höfðu ÍR-ingar þó sigur undir lokin. Það má því búast við hörkuleik á sunnudag. Nokkrar breytingar hafa orðið á Gróttuliðinu í vetur og má nefna að Einar Bjarni Ómarsson og Grétar "Gullkálfur" Khan eru báðir snúnir aftur á Nesið. Þrátt fyrir ýmsar breytingar hefur kjarninn úr liðinu sem spilaði síðasta sumar haldist óbreyttur.

Leikurinn hefst á slaginu 14:00 en kl. 12:00 mun stjórn knattspyrnudeildar taka sér stöðu við grillið og matreiða hamborgara ofaní æsta stuðningsmenn.

Gróttuvöllurinn hefur undanfarin ár verið gríðarsterkt vígi þar sem útiliðin hafa oftar en ekki farið tómhent heim. Mættum öll eldhress á sunnudaginn og styðjum strákana til sigurs!

Allir á völlinn! - Mætum í bláu!

ÁFRAM GRÓTTA!

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.