Knattspyrnudeild

Tap í fyrsta leiknum

Knattspyrna - Mfl. karla

10.5.2010

Það var frábær veður á Seltjarnarnesi og mikið um dýrðir þegar lið Gróttu spilaði sinn fyrsta leik í 1. deild þegar ÍR úr Breiðholti kom í heimsókn á sunnudag. Leikurinn hófst fjörlega en greinilegt var að taugatitrings gætti í liði okkar manna. Strax á 10. mínútu leit fyrsta mark leiksins dagsins ljós þegar Kristján Ari Halldórsson stakk sér inn fyrir sofandi Gróttuvörnina og lyfti boltanum snyrtilega yfir Kristján Finnbogason í markinu. Forysta ÍR-inga varði þó skammt því átta mínútum síðar jöfnuðu Gróttumenn metin.

Þá fékk Sigurvin Ólafsson góða sendingu upp í hornið og spyrnti boltanum fast inn í teig gestanna þar sem varnarmaður þeirra kom á fleygiferð og setti boltann í eigið mark. Skömmu áður hafði Gróttuliðið orðið fyrir áfalli þegar kantmaðurinn Garðar Guðnason varð að fara af velli vegna meiðsla.

Eftir þessa fjörugu byrjun róuðust leikar en ÍR-ingar voru þó töluvert meira með boltann og voru oft nálægt því að komast í færi. Gróttumenn beittu hröðum upphlaupum og var Magnús Gíslason oft aðgangsharður upp við mark Breiðhyltinga en hann var að spila sinn fyrsta leik fyrir Gróttu ásamt þeim Knúti og Steindóri sem kom inná fyrir Garðar. Rétt áður en flautað var til hálfleiks náðu ÍR-ingar forystunni á ný þegar varnarmenn Gróttu töpuðu boltanum illa og Árni Freyr Guðnason skoraði eftir gott spil.

Seinni hálfleikur hófst fjörlega eins og sá fyrri og strax í upphafi fengu ÍR-ingar tvö ákjósanleg færi til að auka forskotið. Í báðum tilvikum var Kristján Ari Halldórsson einn á mót nafna sínum Kristjáni Finnbogasyni sem hefur greinilega engu gleymt og varði frábærlega í bæði skiptin. Eftir það tóku Gróttumenn öll völd á vellinum og sóttu fast að marki ÍR. Hafsteinn Bjarnason átti þrumuskalla í slá og sömuleiðis fékk Sölvi Davíðsson gott færi.

Þegar um korter var eftir af leiknum gerðist furðulegt atvik þegar Hrafn Jónsson, hægri bakvörður Gróttu, var rekinn af velli. Þá fékk hann sitt annað gula spjald fyrir þær sakir að stíga út fyrir völlinn og koma inná aftur án þess að spyrja dómarann leyfis. Einkar óheppileg dómgæsla þar á ferðinni og Hrafn líklega í banni á föstudag þegar okkar menn heimsækja KA á Akureyri. 

Brottreksturinn virtist ekki hafa mikil áhrif á Gróttuliðið sem hélt áfram að pressa stíft á gestina. Á 90. mínútu fékk Þorsteinn Einarsson, markvörður ÍR, að líta rauða spjaldið fyrir að strauja Sölva Davíðsson sem sloppinn var einn í gegn. Þorsteinn hafði varið vel allan leikinn og eflaust óþægileg tilhugsun fyrir Ágúst Bjarnason varamarkvörð að koma inn á og þurfa strax að takast á við aukaspyrnu frá aukaspyrnusérfræðingnum Sigurvin Ólafssyni. 

Spyrnan fór hárfínt yfir en áður en yfir lauk höfðu Gróttumenn skotið í slá og gert harða atlögu að marki Breiðhyltinga. Inn vildi boltinn ekki og ÍR-ingar hirtu öll þrjú stigin á Gróttuvellinum. Leikurinn var mjög opinn og skemmtilegur og góð stemmning var á Nesinu þar sem um 400 manns lögðu leið sína á völlinn.

Stjórn knattspyrnudeilar fær fjöður í hattinn fyrir stórglæsilega umgjörð á leiknum. Allir hlutir gengu sem smurðir og allt var klappað og klárt þegar leikurinn var flautaður á. Leikmenn 2. og 3. flokks löggð líka hönd á plóg og munu gera það í allt sumar ásamt öðrum frábærum sjálfboðaliðum úr röðum Gróttunnar.

Eins og áður sagði er næsti leikur liðsins á föstudag þegar hið fornfræga lið KA verður sótt heim en þeir gulu komu á óvart um helgina með því að leggja Þrótt að velli í Laugardalnum. Næsti heimaleikur verður svo laugardaginn 22. maí þegar HK kemur í heimsókn.

 

Lið Gróttu var svona á sunnudag:

Kristján, Hrafn, Knútur, Agnar, Einar Bjarni, Hafsteinn, Sigurvin, Pétur Már, Sölvi, Garðar (Steindór '14) og Magnús (Dan '85)

Ónotaðir varamenn: Kjartan, Bragi og Viggó

 

 Sigurvin og Pétur Már fagna markinu á sunnudag                      Haffi í leiknum við ÍR

 

 Sigurvin og Pétur fagna markinu                                     Hafsteinn Bjarnason í baráttunni

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.