Knattspyrnudeild

VISA-bikar karla - Hamar - Grótta á þriðjudagskvöld

17.5.2010

Eftir góða ferð til Akureyrar á föstudag er komið að VISA-bikarnum en á morgun spilar Grótta sinn fyrsta leik í keppninni þegar liðið sækir Hamar í Hveragerði heim. Leikurinn hefst kl. 19:00 og verður spilaður á Grýluvelli sem er staðsettur í dalnum norðan við bæinn. Leikir þessara liða hafa verið fjörugir undanfarin ár en Hamar leikur í 2. deild.

Grótta og Hamar hafa mæst margoft undanfarin ár en hér verður farið yfir leiki, úrslit og markaskorara síðustu þriggja ára:

29. 06. 2007 - 3. deild A-riðill. Grótta 2 - 1 Hamar (Andri Sveinsson og Garðar Guðnason)

14. 08. 2007 - 3. deild A-riðill. Hamar 1 - 4 Grótta (Andri Sveinsson, Brynjólfur Bjarnason, Enric Már Teitsson og Ásgrímur Sigurðsson)

23. 05. 2008 - 2. deild. Grótta 1 -1 Hamar (Brynjólfur Bjarnason)

24. 07. 2008 - 2. deild. Hamar 1 - 3 Grótta (Ásmundur Haraldsson 2 og Sölvi Davíðsson)

21. 05. 2009 - 2. deild. Grótta 4 - 1 Hamar (Agnar Sigurjónsson, Sigurvin Ólafsson, Garðar Guðnason og Sölvi Davíðsson)

02. 06. 2009. VISA-bikarinn. Grótta 5 - 0 Hamar (Pétur Már Harðarson 2 Sigurvin Ólafsson, Ásmundur Haraldsson og Andri Sveinsson)

23. 07. 2009 - 2. deild. Hamar 1 - 4 Grótta (Sigurvin Ólafsson, Grímur Björn Grímsson, Pétur Már Harðarson og Garðar Guðnason)

 

Eins og sést á þessari upptalningu hafa leikir liðanna oftar en ekki verið ansi fjörugir og okkar menn oftast haft betur. Liði Hamars var ekki spáð góðu gengi í 2. deildinni þetta árið en liðið hefur endað í 10. sæti síðustu tvö ár. Hvergerðinga má þó ekki vanmeta því innan þeirra raða eru margir ferskir lánsmenn sem ekki hafa komist að hjá meistaraflokkum liða í efri deildum. Þeirra besti maður er þó Skagamaðurinn Ágúst Örlaugur Magnússon sem stýrir spili Hamars á miðjunni.

Við hvetjum sem flesta til að leggja leið sína í Hveragerði annað kvöld og styðja strákana til sigurs. Eins og áður sagði hefst leikurinn kl. 19:00. Nái Grótta að komast í næstu umferð eru möguleikar á því að dragast á móti einhverju úrvalsdeildarliðanna rétt eins og þegar KR kom í heimsókn í fyrra í eftirminnilegum leik og áhorfendamet var slegið á Gróttuvelli.

 

 
                         Meistaraflokkur í æfingaferð á Spáni
 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.