Knattspyrnudeild

Grótta áfram í bikarnum

Knattspyrna - Mfl. karla

19.5.2010

Grótta komst í ţriđju umferđ bikarkeppni KSÍ í kvöld međ sigri á Hamri í Hveragerđi. Leikurinn fer seint í sögubćkurnar fyrir skemmtangildi enda vorbragur á báđum liđum. Eftir ađ stađan var 0-0 eftir venjulegan leiktíma ţurfti ađ grípa til framlengingar. Ţar skoruđu liđin sitt markiđ hvort og réđust ţví úrslitin ekki fyrr en eftir vítaspyrnukeppni.

Grótta var meira međ boltann og sterkari ađilinn í leiknum en átti erfitt međ ađ skapa fćri. Eftir ađ markalaust var í lok venjulegs leikstíma var flautađ til framlengingar. Grótta komst yfir í byrjun seinni hálfleiks framlengingar međ marki frá Daniel Howell. Dan slapp einn í gegnum vörn Hamarsmanna og klárađi fćriđ vel. Ađeins mínútu síđar jafnađi Helgi Guđnason metin međ gulli af marki. Langskot utan af velli sem fór beint í sammarann, algerlega óverjandi.

Ţađ ţurfti ţví ađ grípa til vítaspyrnukeppni. Ţar nýtti Grótta allar sínar spyrnur á međan Hamarsmenn skutu í stöng úr einu sinna. Úrslitin ţví 6-5 fyrir Gróttu. Fyrir Gróttu skoruđu úr vítunum: Ásgrímur, Knútur, Elvar, Pétur Már og Dan.

Ađ öđrum ólöstuđum var Bragi Árnason besti mađur Gróttu í leiknum en hann barđist eins og ljón inni á miđjunni allan leikinn. Einnig átti Hrafn Jónsson góđan leik í hćgri bakverđinum.

Elvar Freyr Arnţórsson var ađ spila sinn fyrsta leik fyrir félagiđ en hann er lánsmađur frá Víkingi. Elvar getur bćđi leikiđ sem framherji og kantmađur og átti margar góđar rispur upp hćgri kantinn í leiknum. Óskum honum til hamingju međ áfangann. Gullkálfurinn sjálfur, Grétar Ali Kahn, spilađi sinn fyrsta leik í Gróttubúningnum síđan 2008 en hann lék sem kunnugt er međ Víkingi á síđasta ári. Ţađ mikill styrkur fyrir liđiđ ađ endurheimta Ali úr meiđslum en hann mun án efa reynast betri en enginn í sumar.

Byrjunarliđ Gróttu: Kristján Finnbogason, Hrafn Jónsson, Knútur Rúnar Jónsson, Vignir Benediktsson, Grétar Ali Khan, Elvar Freyr Arnţórsson, Hafsteinn Bjarnason (Ásgrímur Sigurđsson 45.), Guđmundur Bragi Árnason, Ólafur Páll Johnson (Magnús Bernhard Gíslason. 105.), Sölvi Davíđsson (Pétur Már Harđarson 45.), Daniel Howell.

Ónotađir varamenn: Einar Bjarni Ómarsson, Magnús Örn Helgason.

Nćsti leikur okkar manna er svo á laugardaginn ţegar HK úr Kópavogi kemur úr heimsókn á Gróttuvöll. Leikurinn hefst kl. 14:00 og hvetjum viđ ađ sjálfsögđu alla til ađ leggja leiđ sína á völlinn.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síđu:



fotbolti1
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.