Knattspyrnudeild
Grótta og HK mætast á morgun
Á laugardaginn kl.14:00 leikur Grótta sinn þriðja leik í 1. deildinni í fótbolta þegar HK úr Kópavogi kemur í heimsókn á Gróttuvöll. Eins og flestir vita náðu okkar menn í sitt fyrsta stig á Akureyri síðasta föstudag eftir jafntefli við KA. Á þriðjudaginn voru svo Hamarsmenn lagðir að velli í vítaspyrnukeppni í Hveragerði og strákarnir því komnir í næstu umferð bikarkeppninnar. Það er því sigling á Gróttuliðinu!
Lið HK er með þrjú stig eftir tvo leiki eftir sigur í fyrsta leik gegn ÍA en tap gegn Þrótti í þeim næsta. Fyrir tímabilið var Kópavogsbúum spáð 5. sæti deildarinnar en þjálfari þeirra er sjónvarpsstjarnan Tómas Ingi Tómasson. Með liðinu leika margir sterkir leikmenn en þeirra aðalmaður er framherjinn gamalreyndi Jónas Grani Garðarsson.
Stemningin á síðasta heimaleik var prýðileg en tæplega 400 áhorfendur lögðu þá leið sína á Gróttuvöll. Hins vegar hafa Gróttustuðningsmennirnir sýnt í gegnum tíðina að þeir geta gert enn betur og vonumst við því eftir fleiri áhorfendum og meiri látum næsta laugardag! Um kvöldið verður svo hægt að skella sér á vorgleði Gróttu í Félagsheimilinu þar sem Ingó, Ásmundur Haraldsson og Veðurguðirnir munu skemmta gestum.
Mætum öll í góðu stuði á völlinn á laugardaginn og styðjum strákana til sigurs. Það er gömul klisja að áhorfendur geti verið 12. maðurinn - tökum klisjuna alla leið á laugardaginn!
*Grill og sala árskorta frá 12:30*
Allir á völlinn! - Mætum í bláu!
ÁFRAM GRÓTTA!

