Knattspyrnudeild
2. flokkur byrjar vel
Það má með sanni segja að 2. flokkur Gróttu hafi ekki litið jafn vel út í mörg ár. Stór og góður hópur hefur æft vel í allan vetur undir styrkri stjórn Sigga Helga og lofar byrjun sumarsins góðu. Strákarnir hafa nú sigrað tvo fyrstu leiki Íslandsmótsins og komist áfram í VISA-bikarnum eftir góðan sigur á Haukum.
Grótta 2 - 1 Tindastóll/HKL
Fyrsti leikur Íslandsmótsins fór fram mánudaginn 16. maí þegar sameinað lið Tindastóls, Hvatar, KS og Leifturs kom í heimsókn en eins og nafnið gefur til kynna er liðið skipað strákum af öllu norðurlandi vestra.
Gróttuliðið byrjaði af krafti og fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós strax á 2. mínútu. Þá var það Viggó Kristjánsson sem skoraði beint úr aukaspyrnu sem markmaður norðlendinga hefði líklega átt að verja en inn fór boltinn.
Jafnræði var með liðunum út allan fyrri hálfleikinn og eins þegar sá seinni hófst. Viggó náði að bæta við öðru marki eftir um klukkutíma leik og staðan því orðin 2-0 og Gróttuliðið í vænlegri stöðu. Þegar 15 mínútur voru eftir náðu Tindastólsmenn að minnka muninn og upphófust því spennandi lokamínútur. Gróttustrákarnir héldu velli og uppskáru góðan sigur í fyrsta leik.
Lið Gróttu í leiknum:
Bjarni Freyr, Árni Jóhann (Kristófer '65), Emil, Oddur, Ívar, Sigurður G (f), Ásgeir, Tihomir, Jóhann Páll, Viggó, Eiríkur (Garðar Rafn '85)
Ónotaðir varamenn: Sigurður K., Óskar, Gunnar Birgis.
Haukar 2 - 4 Grótta
Föstudaginn 21. maí var komið að fyrstu umferð VISA-bikarkeppninnar en okkar menn höfðu dregist á móti Haukum og var leikurinn spilaður að Ásvöllum í Hafnarfirði. Heimamenn byrjuðu mikið mun betur og tóku forystu strax á 10. mínútu. Undir lok fyrri hálfleiks náði fyrirliðinn Siggi G. að jafna, gegn gangi leiksins, en Haukar höfðu þá gert margar hættulegar atlögur að Gróttumarkinu.
Hálfleiksræða Sigga Helga hlýtur að hafa verið kröftug því allt annað Gróttulið mætti til leiks í seinni hálfleik og tók öll völd á vellinum. Jóhann Páll kom Gróttu yfir á 55. mínútu og þegar korter var eftir höfðu þeir Eiríkur og Garðar Rafn skorað eitt mark hvor og staðan því orðin 4-1. Á 86. mínútu minnkuðu Haukar muninn með skondnu marki en það var Siggi K, hægri bakvörður Gróttu, sem gaf boltann óvart fyrir eigið mark.
Með sigrinum tryggðu strákarnir sig áfram í næstu umferð bikarkeppninnar og mæta þar Íslandsmeisturum KR í sannkölluðum nágrannaslag í Frostaskjóli þann 26. júní næstkomandi.
Lið Gróttu í leiknum:
Bjarni Freyr, Árni Jóhann (Sigurður K. '70), Ásgeir, Emil, Ívar (Sigurður Steinar '59), Sigurður G. (f), Kristófer (Garðar Rafn '59), Tihomir, Jóhann Páll (Bjarki Már '75), Viggó, Eiríkur (Óskar '75)
Grótta - Snæfellsnes/Skallagrímur
Nú í dag, á annan í hvítasunnu, kom sameinalið Skalagríms og Snæfellsness í heimsókn í blíðuna á Seltjarnarnesi. Jafnt var á með liðunum allan fyrri hálfleikinn þó að Gróttuliðið hafi skapað sér betri færi. Rétt fyrir hálfleik náðu okkar menn að koma boltanum í markið þegar Oddur stangaði hann inn eftir hornspyrnu. Í síðari hálfleiknum virtist þolið bregðast gestunum og nýtti Gróttuliðið sér það og skoraði fljótlega tvö mörk. Þar voru að verki þeir Garðar og Viggó en einhverjir myndu líklega flokka mark þess síðarnefnda sem fyrirgjöf - en inn fór boltinn. Siggi G. bætti svo við fjórða markinu með sannkölluðum þrumufleyg í samskeytin. Áður en yfir lauk skoraði Garðar sitt annað mark og Kristófer bætti svo við því sjötta og þar við sat, góður sigur á Snæfellsnesi/Skallagrím.
Lið Gróttu í leiknum:
Bjarni Freyr, Árni Jóhann, Odur, Emil, Sigurður Steinar, Tihomir, Sigurður G. (f), Ásgeir, Jóhann Páll, Viggó, Eiríkur.
Garðar, Ívar, Jóhannes, Kristófer og Valtýr komu allir inná.
Eins og sjá má á þessum umfjöllunum byrjar 2. flokkurinn með glans. Strákarnir hafa spilað virkilega fínan fótbolta og liðsheildin verið sérstaklega góð. Nokkrir þessara stráka hafa fengið tækifæri með meistaraflokki í vetur og vor og munu án efa banka á dyrnar þar í sumar. Þrátt fyrir þessa góðu byrjun þýðir ekkert að slaka á því framundan eru leikir við Breiðablik og Hött en bæði lið eru vel mönnuð og erfið við að eiga.
Meðfylgjandi myndir tók Eyjólfur Garðarsson á heimaleikjum 2. flokks.



