Knattspyrnudeild

Meistaraflokkur fer austur á morgun

28.5.2010

Fjórða umferð 1. deildarinnar í fótbolta hófst nú í kvöld og lýkur á morgun, laugardag, þegar okkar menn í Gróttu keppa við Fjarðarbyggð á útivelli. Strákarnir fljúga sem leið liggur til Egilsstaða í fyrramálið en leikurinn fer svo fram í Fjarðarbyggðarhöllinni kl. 14:00.

Grótta og Fjarðarbyggð hafa einu sinni mæst á síðustu árum en það var í úrslitum B-deildar Lengjubikarsins í fyrra. Leikið var í Boganum á Akureyri og höfðu Gróttumenn sigur 2-1 með marki frá Ásgrími Sigurðssyni en hitt markið var sjálfsmark. Þar með var fyrsta dolla meistaraflokks Gróttu komin í hús eftir margra ára bið.

Fyrir tímabilið var Fjarðarbyggð spáð níunda sæti en okkar mönnum því ellefta. Austfirðingar náðu þó prýðilegum árangri í 1. deildinni í fyrra þar sem liðið endaði í fjórða sæti. Eftir þrjár fyrstu umferðirnar er Fjarðarbyggð með þrjú stig eftir að hafa lagt ÍA að velli á meðan Grótta er með eitt stig eftir jafnteflið gegn KA.

Það er því ljóst að möguleikar Gróttuliðsins á morgun eru góðir þó að lið Fjarðarbyggðar sé ekkert lamb að leika sér við! Við óskum strákunum góðs gengið fyrir austan og sjáumst svo öll á Valbjarnarvelli á fimmtudaginn þegar Grótta spilar við Þrótt í 32-liða úrslitum VISA-bikarsins.

ÁFRAM GRÓTTA!

Knútur og Haffi í baráttunni    Viggó í bikarleiknum við KR

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.