Knattspyrnudeild
Grótta sækir Þróttara heim í VISA-bikarnum
Knattspyrna - mfl.karla
Grótta leikur í 32 liða úrslitum VISA bikarsins fimmtudaginn 3.júní en þá sækir liðið Þrótt heim á Valbjarnarvöllinn. Leikurinn hefst kl. 19.15. Grótta sigraði lið Hamars úr Hveragerði 6-5 eftir vítaspyrnukeppni. Dan Howell skoraði eina mark liðsins í venjulegum leiktíma og gulltryggði síðan sigurinn með góðu marki úr síðustu vítaspyrnunni. Þróttarar sigruðu lið Álftaness 1-4 og komust þar með áfram í 32 liða úrslitin. Hvetjum alla til að skreppa í Laugardalinn og styðja við bakið á strákunum.

