Knattspyrnudeild
Sanngjarn sigur Fjölnis
Knattspyrna - Mfl. karla
Leikur Gróttu og Fjölnis fór fram á Gróttuvelli nú fyrr í kvöld. Liðin áttu ólíku gengi að fagna eftir bikarleiki í vikunni. Þar sigraði Fjölnir úrvalsdeildarlið Hauka 2-0 á meðan Grótta tapaði 3-1 fyrir Þrótti. En í 1. deildinni var einungis tveggja stiga munur á liðunum, Fjölnir með 6 stig en Grótta 4.
Fyrri hálfleikur var einkar bragðdaufur. Fjölnismenn voru þó meira með boltann á meðan Grótta varðist og reyndi að beita hröðum sóknum. Það voru þó Fjölnismenn sem fengu betri færi. Viðar Guðjónsson skoraði mark á 39. mín sem dæmt var af vegna rangstæðu. Svo átti Stanislav Viakovic átti skalla í stöng á 43. mín eftir aukaspyrnu frá hægri kanti.
Það voru enginn mörk skoruð í fyrri hálfeik. Hálfleik sem einkenndist af mikilli stöðubaráttu og fáum færum.
Seinni hálfleikur var talsvert skemmtilegri en sá fyrri. Það dró til tíðinda á 50. mínútu þegar heimamenn vildu fá vítaspyrnu þegar það virtist vera brotið á Ólafi Páli en Gunnar Jarl, dómari leiksins, dæmdi ekkert. Fjölnismenn brunuðu í sókn og fengu hornspyrnu. Úr henni kom svo fyrsta mark leiksins. Stanislav Vidakovic skallar boltann og Kristján Finnboga ver en nær ekki að halda boltanum sem berst fyrir fætur Gunnars Vals Gunnarsonar sem þrumaði boltanum uppí þaknetið. Fjölnir því komið yfir á 51. mín.
Aðeins tveimur mínútum síðar tvöfölduðu Fjölnismenn forystu sína. Þar var verki Aron Jóhannsson. Hann fékk boltann við hægra vítateigshornið og rak boltann að markinu. Færið var þröngt en hann setti boltann listilega vel á nærhornið framhjá Kristjáni í markinu.
Eftir mörkin róaðist leikurinn aðeins en Fjölnismenn héldu áfram að vera meira með boltann. Eitthvað hefur Ásmundi Haraldssyni, þjálfara Gróttu, þótt vanta í leik sinna manna en 68. mín gerði hann þrefalda skiptingu. Skömmu eftir það varð Grótta fyrir áfalli þegar Grétar Ali Khan meiddist og neyddist til að spila haltrandi það sem eftir lifði leiks.
Fjölnismenn héldu áfram að fá færin. Á 74. mín lagði Pétur Markan boltann fyrir Aron Jóhannsson sem var kominn einn í gegn en Kristján Finnboga sá við honum.
Á 81. mín fengu Fjölnismenn annað gott færi þegar Pétur Markan umkringdur Kristjáni og varnarmönnum Gróttu inní teig leggur boltann út á Guðmund Karl Guðmundsson sem skýtur yfir.
Heimamenn náðu að minnka muninn í blálokin. Kristján Finnboga tók aukaspyrnu við miðjuna og boltinn lendir inní þvögu í teig Fjölnis, þar sem Viðar Guðjónsson skaut boltanum í eigið net.
Lengra komust heimamenn ekki og lokastaðan því 2-1 fyrir Fjölni.
Heilt yfir verðast úrslitin að teljast sanngjörn. Fjölnir var meira með boltann og skapaði sér fleiri og hættulegri færi. Fjölnir fer með sigrinum í 3. sætið og geta blandað sér toppbaráttuna. Grótta situr eftir við botninn og þarf virkilega að fara hala inn stigum á heimavelli ef ekki á illa að fara. En liðið hefur tapað öllum þremur heimaleikjum sínum 2-1.
Byrjunarlið Gróttu: Kristján Finnbogason, Knútur Rúnar Jónsson, Grétar Ali Khan, Ólafur Páll Johnsons, Sölvi Davíðsson, Hrafn Jónsson, Elvar Freyr Arnþórsson, Hafsteinn Bjarnason, Daniel Howell, Pétur Már Harðason, Vignir Benediktsson.
Byrjunarlið Fjölnis: Hrafn Davíðsson, Gunnar Valur Gunnarsson, Pétur Georg Markan, Viðar Guðjónsson, Kristinn Freyr Sigurðsson, Einar Markús Einarsson, Aron Jóhannson, Stanislav Vidakovic, Illugi Þór Gunnarsson, Ottó Marino Ingason, Guðmundur Karl Guðmundsson.
Dómari: Gunnar Jarl. Komst ágætlega frá leiknum.
Eftirfarandi myndir tók Eyjólfur Garðarsson



