Knattspyrnudeild

Oddur æfir með Lillestrøm í Noregi

9.6.2010

Oddur Karl Heiðarsson, leikmaður 3. flokks í fótbolta, æfir þessa dagana með U19 ára liði norska stórliðsins Lillestrøm. Oddur fór á æfingu hjá U19 liðinu og hann þótti standa sig vel á æfingunni og var boðið að æfa með liðinu í heila viku.

Oddur, sem er 16 ára, spilar oftast sem miðvörður og er ásamt því að spila með 3. flokki fastamaður í liði 2. flokks. Þessi knái varnarmaður lék sinn fyrsta meistaraflokksleik í Lengjabikarnum í vor þegar hann kom inná gegn bikarmeisturum KR. Oddur hefur verið inn og út úr æfingahóp U-17 ára landsliðsins á árinu en í haust tekur liðið þátt í forkeppni EM 2011.

Lillestrøm spilar í norsku úrvalsdeildinni, "Tippeligaen", og er eins og stendur í 4. sæti eftir 14 leiki. Markvörðurinn Stefán Logi Magnússon leikur með liðinu en Skagamaðurinn ungi Björn Bergmann Sigurðsson er einnig á mála hjá félaginu. Aðrir Íslendingar hafa spilað með Lillestrøm og má þar helst nefna þá Rúnar Kristinsson, Ríkharð Daðason, fyrrum Gróttumanninn Indriða Sigurðsson og landsliðsframherjann og Dalvíkinginn Heiðar Helguson. Þjálfari Lillestrøm er Henning Berg, fyrrum leikmaður Manchester United.

 

Stefán logi Magnússon

Stefán Logi í leik með Lillestrøm

Lillestrom

 

 

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.