Knattspyrnudeild

Grátlegt tap í Breiđholtinu

Knattspyrna - Mfl. karla

14.6.2010

Grótta fór í fyrri af sínum tveimur heimsóknum í Breiđholtiđ á ţessu tímabili núna föstudaginn. Allar ađstćđur til knattspyrnuiđkunar voru til fyrirmyndar; gott veđur, góđur völlur og tvö prýđileg. Leiknismenn hafa byrjađ deildina af krafti ađ ţađ var ljóst ađ ţađ yrđi viđ ramman reip ađ draga. Ţar ađ auki vantađi Kristján Finnboga í markiđ en hann er lítillega meiddur.

Ţađ dró til tíđinda strax á 9. mínútu. Sölvi fékk ţá boltann upp kantinn, komst framhjá bakverđi Leiknis og sendi bolta inn í teig á Magnús sem gerđi vel ađ halda varnarmanni Leiknis frá sér og sendi boltann yfirvegađ í markiđ. Frábćr byrjun. Strax tveimur mínútum síđar fékk Magnús svipađ fćri en í skaut rétt framhjá í ţađ skiptiđ.

Eftir markiđ byrjuđu Leiknismenn ađ pressa meir á Gróttu. Á 21. mínútu fengu ţeir sitt hćttulegasta fćri hálfleiksins ţegar ţeir áttu skot sem fór í slánna og síđan út teig ţar sem varnarmenn Gróttu náđu ađ hreinsa frá

Ţrátt fyrir ađ Leiknir hafi veriđ meira međ boltann í hálfleiknum var ţađ Grótta sem fékk hćttulegust fćrin. Pétur Már fékk til ađ mynda kjöriđ tćkifćriđ á 43. mínútu ţegar hann var einn á móti markmanni Leiknis eftir góđa sendingu frá Magnúsi en skot hans var variđ. Ađeins mínútu síđar var ţađ Magnús sem átti gott skot fyrir utan teig Leiknis en boltinn fór naumlega framhjá.

Strákarnir léku einkar vel í hálfleiknum og voru verđskuldađ yfir ţegar dómarinn flautađi til hálfleiks.

Seinni hálfleikurinn ţróađist svipađ og sá fyrri. Leiknismenn voru meira međ boltann á međan Grótta beitti hćttulegum skyndisóknum. Á 67. mínútu varđ svo augnabliks einbeitingarleysi í varnarleik Gróttu sem Helgi Pjetur Jóhannsson nýtti sér til fullnustu. Ţađ kom sending inn í teig frá hćgri kanti og Helgi var óvaldađur og skallađi boltann í markiđ.

Ţrátt fyrir markiđ héldu strákarnir áfram ađ verjast vel. Jafntefli virtist ćtla ađ vera niđurstađan. En á 83. mínútu fékk Grótta skyndisókn og Elvar og Dan virtust vera komnir tveir á móti einum Leiknismanni. En sóknin rann ţví miđur út í sandinn og í stađinn ţeyttust Leiknismenn í sókn og Helgi Pjetur sendi boltann inn í teig Gróttu ţar sem Kristján Páll Jónsson skallađi boltann inn.

Niđurstađan var ţví grátlegt tap. Strákarnir spiluđi leikinn einkar skynsamlega og vörđust vel. Smá einbeitingleysi bćđi í vörn og sókn urđu til ţess ađ Grótta tóku ekki stig međ út á Nes. Ţađ er nauđsynlegt ađ líta á ţađ jákvćđa og spilamennska liđsins var allt önnur en í síđustu tveimur leikjum. Ţađ var gaman ađ heyra í Ásmundi ţjálfara í viđtali viđ fotbolti.net eftir leik ţar sem hann lýsti yfir ađ hann gćti ekki beđiđ eftir nćsta leik og ég er viss um ađ strákarnir séu saman sinnis.

Sá leikur er á laugardaginn og hvet ég alla til ađ mćta. Gestirnir eru Ţórsarar og leikurinn er gríđarlega mikilvćgur. Leikurinn leggst vel í mig og ég spái ađ fyrstu stigin á heimavelli komi í hús.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síđu:



fotbolti1
ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.