Knattspyrnudeild

Vel heppnað Skagamót hjá 7.flokki

Knattspyrna - yngri flokkar

24.6.2010

Sumarmót yngri flokkanna eru nú hafin en eins og við sögðum frá hér á síðunni fór 5. flokkur kvenna á Pæjumótið í Vestmannaeyjum á dögunum. Þessa helgina ferð 6. flokkur karla á Shellmótið í Eyjum og í næstu viku fer 5. flokkur á N1-mótið á Akureyri. Það voru 32 sprækir Gróttustrákar í 7. flokki sem gerðu góða ferð á Skagamótið um síðustu helgi en Grótta sendi 4 lið til leiks að þessu sinni.

A-liðið lenti í afar erfiðum riðli fyrsta daginn og voru oft á tíðum mjög óheppnir í sínum leikjum. Þeir léku í þýsku deildinni svokölluðu seinni tvo dagana og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu hana með glæsibrag. B-liðið fór einnig í þýsku deildina og lék þar við mörg sterk lið. Illa gekk til að byrja með en þegar leið á mótið elfdist liðið mikið og voru síðustu leikir B-liðsins stórgóðir og miklar framfarir sem strákarnir sýndu.

D-liðið skipuðu strákar sem hafa æft fótbolta saman í nokkur ár þrátt fyrir að vera aðeins 6 ára gamlir - einn leikmaður D-liðsins er meira að segja ennþá á leikskóla! Þeir léku í ensku deildinni, þeirri næst sterkustu, og sigruðu hana glæsilega með fullu húsi stiga.D liðið 2010

F-liðið spilaði í spænsku deildinni og mætti þar mörgum erfiðum andstæðingum. Strákarnir stóðu sig mjög vel og voru oft óheppnir í jöfnum leikjum.

Það sem mestu máli skiptir á svona mótum er auðvitað skemmtunin og sú reynsla sem strákarnir fá af því að fara á svona stórt mót sem lið. Skagamótið er oftast fyrsta stóra fótboltamótið á fótboltaferli strákanna og margir að fara í fyrsta skipti frá mömmu og pabba yfir nótt. Meira en 1000 strákar taka þátt í mótinu og margt skemmtilegt gert á meðan mótinu stendur. Ógleymanlegt fyrir strákana.

D liðið á palli 2010

 

7flokkur2010

 Skagamót - Aliðið

Skagamót - Aliðið 3

Skagmót - Aliðið 2



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.