Knattspyrnudeild
3. flokkur karla aftur á beinu brautina
3. flokkur karla hélt austur fyrir fjall á föstudag og lék sinn fjórða leik í Íslandsmótinu þegar lið KFR var heimsótt á Hvolfsvöll. Skemmst er frá því að segja að strákarnir unnu góðan 9-0 sigur og því aftur komnir á beinu brautina eftir slakt gengi í undanförnum leikjum.
20. maí - Grótta - Afturelding á Gróttuvelli
Það var ógnarkraftur í 3. flokks strákunum í fyrsta leik Íslandsmótsins. Gróttuliðið hafði í tvígang tapað við Mosfellingum á undirbúningstímabilinu og áttu því harma að hefna. Fyrsta mark sumarsins leit dagsins ljós á 5. mínútu þegar Ólafur Ægir skoraði gott mark. Aðeins mínútu síðar bætti Björn Axel um betur þegar hann slapp einn inn fyrir vörn Aftureldingar. Þriðja markið kom stuttu síðar en þar var að verki Gunnar Birgisson og 3-0 forysta í hálfleik staðreynd. Afturelding minnkaði muninn snemma í seinni hálfleiknum en stuttu síðar gerðu Gróttustrákarnir út um leikinn með þremur mörkum frá Birni, Gunnari og Óla. 6-1 sigur í fyrsta leik staðreynd þar sem liðið lék stórvel allt frá markverði til fremstu manna.
28. maí - Grótta - Valur á Gróttuvelli
Gróttustrákarnir hófu þennan leik ekki af sama krafti og einbeitingu og þann fyrsta og eftir einungis 13 mínútur voru Valsmenn komnir í 2-0. Gestirnir voru ívið sterkari það sem eftir lifði hálfleiks en ekki voru skoruð fleiri mörk. Það var miklu grimmara Gróttulið sem mætti út í síðari hálfleikinn og eftir 10 mínútur náði Ólafur Ægir að minnka muninn með miklu harðfylgi. Grótta sótti stíft næstu mínúturnar en inn vildi boltinn ekki. Skiptingar Sigga Helga gerðu þó gæfumuninn að lokum þegar varamaðurinn Pétur Theódór náði að jafna leikinn með góðu marki eftir sendingu frá öðrum varamanni, Birni Valdimarssyni. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og jafntefli því niðurstaðan.
8. júní - Grótta - ÍBV á Gróttuvelli
Fyrsta umferð VISA-bikarkeppni 3. flokks var leikin á Gróttuvelli þegar Vestmannaeyingar komu í heimsókn. Eitthvað voru Gróttustrákarnir sofandi til að byrja með en ÍBV komst yfir eftir aðeins 6 mínútur. Pétur Theódór þakkaði fyrir byrjunarliðssætið með marki eftir 25 mínútur og bætti við öðru marki fljótlega eftir hálfleik. ÍBV náði þó að jafna metin stuttu síðar og þrátt fyrir aragrúa af færum náði Gróttuliðið ekki að gera út um leikinn og framlenging því staðreynd. Ekkert markvert gerðist í henni og þurfti því góður dómari leiksins, Ásmundur Haraldsson, að grípa til vítaspyrnukeppni. Þrátt fyrir góða tilburði Helga í markinu nýttu Vestmannaeyingar allar sínar spyrnur og fóru með sigur af hólmi í leik þar sem Gróttuliðið hefði hæglega getað skoraði fleiri mörk.

11. júní - Njarðvík - Grótta á Njarðvíkurvelli
Þessum leik vilja Gróttustrákarnir líklega gleyma sem fyrst en spilamennskan í leiknum var langt frá því nógu góð. Það voru þó okkar menn sem tóku forystuna eftir hálftíma leik þegar Kristinn Rúnar skoraði laglegt mark. Gróttuliðið hefur kannski haldið að björninn væri unninn í hálfleik en þegar aðeins ein mínúta var búin af seinni háfleik höfðu heimamenn jafnað metin. Þeir voru svo fljótir að bæta um betur með tveimur mörkum og fóru Gróttustrákarnir því niðurlútir heim á Nes, vitandi að þeir hefðu getað spilað miklu betur. Það var greinilegt að Gróttuliðið saknaði stálmannsins Odds í vörninni í leiknum en hann var við æfingar hjá norska liðinu Lillestrøm.
18. júní KFR - Grótta á Hvolfsvelli
Það var greinilegt að Gróttuliðið ætlaði að reka af sér slyðruorðið í þessum leik því liðið mætti gríðarlega einbeitt til leiks í Rangárvallarsýslunni. Björn Axel kom okkar mönnum yfir eftir 19. mínútur en fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik þrátt fyrir mörg opin færi. Í seinni hálfleik settu Gróttustrákarnir í fluggírinn og hvert markið rak annað. Björn Axel skoraði 3 til viðbótar, KFR-liðið setti tvö í eigið mark og Gunnar Birgisson skoraði með þrumufleyg beint úr aukaspyrnu. Fyrirliðinn Bjarki Már náði að losa sig viðvítaspyrnudrauginn og skoraði örugglega úr víti en síðasta mark Gróttu skoraði hinn lipri Vilhálmur Geir Hauksson. Fínn leikur hjá Gróttuliðinu sem vonandi er komið á flug og til í slaginn í næstu leiki.
Ekki er hægt að enda þessa grein um 3. flokk karla án þess að minnast á frábært B-lið flokksins sem hefur þegar þetta er skrifað unnið alla sína 3 leiki í sumar. Afturelding var tekin í bakaríið 7-1 í fyrsta leik, 2-0 sigur á Leikni fylgdi í kjölfarið og loks 5-3 sigur á Selfossi í háspennuleik. Í fyrra fór B-liðið alla leið í úrslitakeppnina og vonandi sama verði upp á teningnum þetta sumarið.


