Knattspyrnudeild

Knattspyrnudeild Gróttu og Veislan í samstarf

Knattspyrna - Mfl. karla

5.7.2010

Knattspyrnudeild Gróttu og Veislan veitingaeldhús skrifuðu undir samstarfssamning fyrir leik Gróttu og ÍA síðastliðinn fimmtudag. Veislan hefur til margra ára verið dyggur stuðningsaðili félagins og samningurinn endurspeglar velvilja forráðamanna fyrirtækjarins gagnvart félaginu. Við undirritun samningsins fékk Bjarni Óli Haraldsson, annar eigenda Veislunnar búning að gjöf frá knattspyrnudeildinni, en Bjarni Óli er gamall Skagamaður en orðinn gallharður Gróttari í dag.

Veislan er alhliða veisluþjónusta, stofnuð 1988, býður upp á fyrsta flokks mat og heildarlausn í veisluna þína ásamt persónulegri þjónustu. Veislan hefur á að skipa úrvals starfsfólki á öllum sviðum, svo sem matreiðslumenn, bakarar, smurbrauðsdömur, sölufulltrúa og þjóna.


Grótta knd og Veislan skrifa undir saming

Bjarni Óli Haraldsson, eigandi Veislunnar og Hilmar Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.