Knattspyrnudeild
Skagamenn unnu botnslaginn
Knattspyrna - Mfl. karla
Grótta tók á móti ÍA í 9. umferð 1. deildar karla á Seltjarnarnesi á fimmtudaginn. Bæði lið voru við botninn og þurftu nauðsynlega á stigum að halda. Grótta með 4 stig í 12. sæti og ÍA í því 10. með 9 stig. Leikurinn fór fram í grenjandi rigningu en annars voru aðstæður góðar.
Leikurinn var rétt orðinn 5 mínúta gamall þegar fyrsta markið leit dagsins ljós. Ólafur Valur Valdimarsson nýtti sér þá slæm mistök í vörn Gróttu þegar sending frá aftasta varnarmanni Gróttu til markmanns mistókst með þeim afleiðingum að Ólafur komst einn á móti markmanni Gróttu, Kjartani Ólafssyni, lék á hann og sendi boltann í autt netið.
Eftir markið tók Grótta völdin og sýndi oft lipra takta áður en þeir náðu að jafna leikinn á 12. mínútu. Þá stangaði Magnús Bernhard Gíslason boltann inn eftir hornspyrnu frá Ólafi Páli Johnson.
Grótta hélt áfram að þrýsta á Skagamenn eftir að hafa jafnað og voru til alls líklegir. Á 20. mínútu átti Pétur Már Harðarson til dæmis gott skot eftir fallega sókn Gróttu en inn vildi boltinn ekki.
Það var því gegn gangi leiksins að Skagamenn komust aftur yfir. Þeir fengu þá aukaspyrnu hægra megin á miðjum vallarhelmingi Gróttu og sendu boltann á fjærstöng. Boltinn virtist vera að leka útaf þegar einn leikmaður ÍA nær að senda hann aftur þvert fyrir markið, á fjærstöng biðu svo tveir Skagamenn og það var Andri Júlíusson sem kom boltanum yfir línuna.
Grótta hélt þó áfram að sækja og 38. mínútu átti Magnús Bernhard Gíslason frábært skot langt utan að velli sem endaði í þverslá gestanna.
En eins og í laginu voru það Skagamenn sem skoruðu mörkin. Á 43. mínútu vann Ólafur Valur Valdimarsson boltann á vallarhelmingi Gróttu og geystist upp vinstri vænginn og skaut boltanum að marki og að lokum fór boltinn í markið en áður var boltinn búinn að fara í stöngina, í markamann og varnarmann Gróttu. En inn fór hann og það er það sem skiptir öllu máli.
Skömmu síðar var flautað til hálfleiks og staðan 3-1 fyrir gestina í rigningunni á Nesinu.
Á 62. mínútu náði svo Hjörtur Hjartarson að krækja í vítaspyrnu eftir að brotið var á honum. Á punktinn fór Arnar Már Guðjónsson. Kjartan í marki Gróttu var nálægt því að verja en inn fór boltinn.
Nóg var færum undir lok leiksins. Miðjan virtist vera horfinn hjá báðum liðum og skiptust þau á að sækja og fengu ágætis færi án þess þó að ná skora. Lokatölur því 4-1 fyrir gestina.
Leikurinn var mjög opinn og skemmtilegur áhorfs. Bleytan setti vissulega mark sitt á leikinn þar sem boltinn rann hratt á gervigrasinu. Skagamenn voru þéttir tilbaka og ógnandi fram á við og nýttu sín færi vel. Gróttumenn spiluðu oft á tíðum ágætis knattspyrnu en það virtist vanta kraft til þess að klára færin.
Með þessu tapi situr Grótta eftir á botninum með 4 stig.
Lið Gróttu: Kjartan Ólafsson, Grétar Ali Khan, Knútur Rúnar Jónsson, Bjarni Jakob Gunnarsson, Hrafn Jónsson, Sölvi Davíðsson, Pétur Már Harðarson, Ólafur Páll Johnson, Steindór Oddur Ellertsson, Garðar Guðnason, Magnús Bernhard Gíslason.

