Knattspyrnudeild

Viggó með U-18 á Svíþjóðarmótið

19.7.2010

Viggó Kristjánsson, leikmaður 2. og meistaraflokks Gróttu, var á dögunum valinn í U-18 ára landslið Íslands í fótbolta sem tekur þátt í æfingamóti í Svíþjóð í vikunni. Hópurinn heldur utan á morgun en leikið verður við lið Svíþjóðar, Noregs og Wales.

Viggó, sem getur bæði leikið sem miðju- og sóknarmaður, hefur nú verið viðloðandi yngri landslið Íslands í þrjú ár og fór meðal annars í tvær ferðir með U-17 á síðasta ári. Hann hefur komið við sögu í þremur leikjum meistaraflokks í sumar.

2. flokkur Gróttu hefur spilað vel í sumar og þar hefur Viggó einnig verið iðinn við kolann. Hann hefur nú skorað 10 mörk í 9 leikjum, nú síðast tvö mörk í 3-0 sigri liðsins á sameiginlegu liði Tindastóls, Hvatar og KS/Leifturs. Nánar verður greint frá leiknum í samantekt síðar í vikunni en 2. flokkurinn trónir nú á toppi C-deildar með 24 stig eftir níu leiki.

Gróttasport óskar þessum efnilega Gróttumanni góðs gengis með landsliðinu í Svíþjóð.

Viggó og Eiríkur í baráttunni

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.