Knattspyrnudeild

Oddur með Lillestrøm á Gothia Cup

20.7.2010

Útrás Gróttustrákanna heldur áfram en Oddur Karl Heiðarsson, leikmaður 2. og 3. flokks Gróttu, er nú farinn í annað sinn til Noregs á reynslu til stórliðsins Lillestrøm. Oddur, sem er 16 ára gamall, leikur með liðinu á sérstöku boðsmóti innan Gothia Cup þar sem 24 sterk U-17 ára lið frá Evrópu etja kappi. Heimasíðan náði tali af kappanum áður en hann hélt út í síðustu viku og ræddi við hann um framhaldið.

Eins og við sögðum frá á síðunni um daginn æfðir þú með norska stórliðinu
Lillestrøm í viku í síðasta mánuði. Nú ert þú að fara aftur út á morgun, hvernig kom það til?

Eldri hópur U-19 ára liðsins er að fara a JET cup í Hamar í Noregi. Yngri hópurinn (strákar fæddir '94 og '93) fara á Gothia Cup (Gothia Tipselit Trophy) í Svíþjóð og mér var boðið að fara og spila með hópnum þar.

 

Hvernig eru aðstæðurnar hjá Lillestrøm?

Aðstæðurnar hjá Lillestrøm eru frábærar, á æfingasvæðinu eru nokkrir mjög góðir
vellir. Þarna er líka ein höll med gervigrasi og svo er flott lyftingaaðstaða.

 

Er mikill munur á æfingunum í Noregi hérna á Íslandi - bæði þá sjálfar
æfingarnar og eins strákarnir sem þú varst að æfa með?

Það er pínu munur, hraðinn og gæði á leikmonnum eru betri hjá Lillestrøm. Hluti af því er að þarna koma leikmenn alls staðar að, það eru t.d. bara fjórir í U-19 ára lidinu frá Lillestrøm bænum sjálfum.
Æfingarnar sjálfar eru svipaðar. Þeir leggja mikla áherslu á að halda bolta innan liðsins og eru því mikið í að spila á litlu svæði.

 

Nú hefur þú spilað vel með 3. flokknum í sumar og eins verið lykilmaður í 2. flokknum sem hefur unnið alla sína leiki nema einn. Þrátt fyrir það varstu ekki valinn í æfingahóp U-17 ára landsliðsins fyrir EM. Svekkelsi eða eitthvað sem þú bjóst við?

Ég var pínu svekktur en þeir hafa verið að fylgjast með mér eftir að þeir völdu hópinn þannig ad þeir vita af mér. Þó svo að ég sé ekki að fara á EM að þá er alltaf næsta verkefni opið, verð bara ad standa mig og gera mitt besta til að komast í það.

 

Þú mættir á nokkrar meistaraflokksæfingar í vor og sumar og tókst þátt í einum leik í Lengjubikar og það gegn liði KR. Var ekki gaman að fá að koma inn í meistaraflokkshópinn aðeins 16 ára gamall?

Jú það var alveg frábært, sérstaklega af því ég spilaði leikinn á móti KR - alltaf gaman að mæta þeim.

 

Sagan segir að þú sért að flytja alfarið út til Noregs með fjölskyldunni síðar í sumar. Ef svo er muntu þá halda áfram hjá Lilleström?

Jú, það er rétt. Ég mun spila með Gróttu á Norway Cup í byrjun ágúst og verð svo eftir í Noregi. Varðandi Lillestrøm að þá mun ég mæta á æfingar með þeim út sumarið og svo velja þeim hóp í haust. Markmiðið er að komast í þann hóp og æfa með þeim að minnsta kosti út 1 tímabil. 

 

Hvenær megum við búast við þér aftur á Nesinu, þá jafnvel í hjarta varnarinnar hjá meistaraflokki?

Það verður bara tíminn að leiða í ljós!

 

Við þökkum þessum geðþekka varnarmanni kærlega fyrir spjallið og óskum honum góðs gengis með Lillestrøm í Svíþjóð og Noregi. Þeir sem vilja fylgjast með Oddi á félögum á Gothia Cup er bent á eftirfarandi slóð www.tipselit.se

Þegar þetta er skrifað hafði Lillestrøm leikið einn leik í riðlinum gegn sænska liðinu Brommapojkarna og sigrað 3-2 en Oddur kom ekkert við sögu í þeim leik. Framundan eru svo leikir gegn Hacken frá Svíþjóð og Paris FC frá Frakklandi.


Oddur fær rautt spjald í framlenginunni gegn KR

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.