Knattspyrnudeild
Yngri flokkarnir á fleygiferđ í Íslandsmótinu
Ţetta sumariđ sendir Grótta til leiks liđ í Íslandsmóti í sjö flokkum. Ţađ sem af er sumri hafa liđin leikiđ á bilinu sex til níu leiki og mörg góđ úrslit litiđ dagsins ljós. Rennum hér lauslega yfir leiki síđustu tveggja vikna hjá Gróttukrökkunum.
5. flokkur karla
Eftir vel heppnađ N1-mót hafa strákarnir í 5. flokki leikiđ tvo leiki á Íslandsmótinu gegn Víking og Aftureldingu. A-liđiđ hefndi ófaranna frá Akureyri og sigrađi liđ Víkings 4-1 í Fossvoginu. Frábćr leikur hjá strákunum sem sýndu sannarlega hvađ í ţeim býr. B-liđiđ náđi 2-2 jafntefli eftir ađ hafa veriđ 2-1 undir í hálfleik. C-liđiđ vann öruggan 3-1 sigur á međan D-liđiđ tapađi 4-1.
Leikurinn viđ Aftureldingu hjá A-liđinu var mjög jafn og markalaust í hálfleik. Snemma í seinni hálfleik skorađi Afturelding en Gróttudrengirnir svöruđu strax međ marki út víti. Aftur komust Mosfellingar yfir og í annađ sinn jöfnuđu Gróttustrákarnir og leikar ţví jafnir, 2-2. B-liđiđ átti einn sinn besta leik í sumar í miklum baráttuleik sem endađi einnig 2-2 ţar sem Gróttustrákarnir voru afar nálćgt ţví ađ stela sigrinum í lokin. C-liđiđ vann frábćran 3-2 sigur en D-liđiđ laut í lćgra haldi, 2-1, ţrátt fyrir mjög góđan leik.
5. flokkur kvenna
Í 5. flokki er flottur hópur Grótustelpna sem flestar eru á sínu öđru ári í fótbolta. Eins og viđ sögđum frá í frétt 23. júní www.grottasport.is/knattspyrnudeild/frettir/nr/2009 fóru stelpurnar á stórvel heppnađ Pćjumót í Eyjum í síđasta mánuđi og stóđu sig vel. 5. flokkurinn hefur leikiđ átta leiki í Íslandsmótinu ţađ sem af er sumri og tekist ađ vinna einn. Miklar framfarir hafa ţó sést hjá liđinu í síđustu leikjum ţrátt fyrir ađ marga leikmenn hafi vantađ vegna sumarfría. 5. flokkur kvenna tók ţátt í Símamótinu og síđustu helgi og verđur betur sagt frá ţví í sérstakri frétt sem er í bígerđ.
4. flokkur karla
Eins og viđ greindum frá í frétt okkar 12. júlí /www.grottasport.is/knattspyrnudeild/frettir/nr/2028 voru strákarnir í 4. flokki á góđu flugi í 3 sćti A-riđils og mikilvćgur leikur viđ Stjörnuna í vćndum. Sá leikur reyndist heldur betur spennandi hjá A-liđinu en Davíđ kom Gróttu yfir snemma leiks međ sannkölluđu ţrumuskoti fyrir utan teig. Stjörnumenn svöruđu hins vegar fyrir sig međ mörkum fyrir og eftir leikhlé og allt virtist stefna í Sjörnusigur. Gróttustrákarnir gáfust hins vegar ekki upp og sýndu frábćran karakter međ ţví ađ jafna leikinn undir lokin en ţar var Arnór ađ verki međ góđu skoti út teignum. B-iđiđ náđi sér aldrei á flug í leiknum viđ Sjörnuna og laut í lćgra haldi í sannkölluđum markaleik sem endađi 7-4 fyrir Garđbćinga. C-liđiđ lék svo síđastliđinn föstudag viđ liđ Fjölnis og vann ţar 8-0 stórsigur í góđum leik. Strákarnir í 4. flokki undirbúa sig nú af kappi fyrir Norway Cup en nú er ađeins vika í brottför.
4. flokkur kvenna
Stelpurnar í 4. flokki léku viđ ÍBV á heimavelli í töluverđu roki fyrir nokkrum vikum. Gróttuliđiđ var miklu betra allan leikinn og uppskar mark um miđbik seinni hálfleiks ţegar Andrea slapp ein inn fyrir vörn Vestmannaeyinga og skorađi međ góđu fćri. Ţví miđur tókst ÍBV ađ jafna rétt fyrir lok leiksins og jafntefli ţví niđurstađan. Fariđ var á Höfn í Hornafirđi og leikiđ viđ liđ Sindra. Tapađist sá leikur 4-1 ţar sem okkar stelpur hefđu getađ gert mikiđ mun betur. Slakur leikur á móti Ţrótti á mánudag fylgdi svo í kjölfariđ en leikurinn endađi međ stórsigri Ţróttarstúlkna. Í dag lauk fyrsti degi ReyCup í Laugardal en ţar eru 4. flokks stelpurnar í eldlínunni og hafa ţegar spilađ tvo leiki - eitt tap og einn sigur. Fćrum ykkur frekari fréttir af ţví um helgina.
Sérstök umfjöllun og leiki 2. og 3. flokks mun ađ öllum líkindum rata inn á síđuna eftir helgina.


