Knattspyrnudeild

4. flokkur kvenna gerði gott mót á Rey Cup

29.7.2010

Dagana 22-25 júlí fór Rey Cup fram í Laugardalnum en mótið er alþjóðlegt knattspyrnumót fyrir 13-16 ára krakka. Á annað þúsund leikmanna tóku þátt í ár en mótið var nú haldið i níunda sinn. Grótta átti sína fulltrúa á mótinu annað árið í röð en 4. flokkur kvenna sendi lið til leiks í keppni B-liða. Stelpurnar spiluðu sex leiki á mótinu, sigruðu tvo, gerðu eitt jafntefli og töpuðu þremur. Fjórir af þessum sex leikjum voru við A-lið annarra félaga. Orri Axelsson er þjálfari þessara efnilegu fótboltastúlkna og segir hann betur frá mótinu hér að neðan.

Á miðvikudeginum var mótið sett með mikilli skrúðgöngu og opnunarhátíð og þar voru okkar stelpur að sjálfsögðu mættar með bros á vör. Á fimmtudagsmorgun spiluðum við okkar fyrsta leik við lið Fjölnis og tapaðist sá leikur 1-0 í miklum baráttuleik. Tinna var ekki langt frá því að jafna metin undir lokin en inn vildi boltinn ekki og jafntefli niðurstaðan. Klara stóð vaktina í markinu og stóð sig frábærlega. Síðar um daginn spiluðu Gróttustelpurnar við lið Þórs frá Akureyri og var aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda. Tinna gerði sér lítið fyrir í fyrri hálfleik og skoraði tvö frábær mörk og héldu Gróttustelpurnar forrystunni til enda og uppskáru góðan 2-0 sigur. Vörnin stóð vaktina af miklu öryggi í leiknum og í kjölfarið komu margar baneitraðar sóknir. Ásamt Tinnu var Andrea öflug á kantinum en eins áttu Arnrún og Jórunn góðan leik og börðust eins og ljón allan tímann. Um kvöldið var svo keppendum mótsins boðið í sundlaugarpartý í Laugardalslaug þar sem margt var um manninn og mikið fjör.

Á föstudeginum kláraðist riðlakeppnin með leikjum við Grindavík og Skallagrím. Leikurinn við Grindavík var í járnum lengst af en tapaðist að lokum 3-1. Mark Gróttu skoraði Lovísa Thompson en hún er á yngra ári í 5. flokk en lék með Gróttustelpunum á mótinu og stóð sig vel. Seinni leikur föstudagsins var við Skallagrím þar sem Grótta var betra liðið allan leikinn sem endaði með 1-1 jafntefli. Hrafnhildur skoraði mark Gróttu með þrumuskoti úr aukaspyrnu en Karen stóð sig afar vel í markinu í leiknum.

Þessi úrslit þýddu að stelpurnar myndu leika um 5-8 sæti á mótinu og á laugardeginum var leikið krossspil við ÍBV. Þar léku Gróttustelpurnar við hvern sinn fingur og unnu frábæran 2-0 sigur á Eyjastelpum. Lovísa og Birna Rún skoruðu mörkin en heilt yfir var liðið mjög jafnt og spilaði afar vel. Um kvöldið var svo haldið gríðarstórt Rey Cup-ball á Brodway þar sem stelpurnar létu að sjálfsögðu sjá sig og stigu lauflétt dansspor við aðra keppendur mótsins.

Með sigrinum á ÍBV tryggðu Gróttustelpurnar sér sæti í leiknum um 5. sætið en hann var spilaður á sunnudagsmorgninum. Mótherjinn var sameinað lið Hattar og Einherja og reyndust Austfjarðarstelpurnar of sterkar fyrir Gróttuliðið þegar upp var staðið. Leikurinn tapaðist 2-0 en vert ber að minnast á frammistöðu Helgu Völu í markinu sem varði m.a. víti. Hópurinn lokaði svo góðri helgi með kvöldverði á hinni margfrægu Hamborgarafabrikku.
 
6. sætið staðreynd á mótinu og ekki annað hægt en að hrósa stelpunum fyrir vasklega framgöngu. Mikill stígandi var í liðinu þessa fjóra daga og sé horft eitt ár aftur í tímann er ljóst að framfarirnar hjá stelpunum hafa verið ótrúlega miklar. Einnig ber að hrósa þeim fyrir góða framkomu innan sem utan vallar og gefur það góð fyrirheit fyrir Pæjumótið sem hefst á Siglufirði að viku liðinni en þar mun 4. flokkur kvenna senda lið til leiks.

 


Stelpurnar á fleygiferð á móti Þór

Orri talar við stelpurnar í hálfleik á Rey Cup

Tinna í baráttunni á móti Þór

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.