Knattspyrnudeild
Grótta - Leiknir: 0 - 0
Knattspyrna - Mfl. karla
Grótta og Leiknir áttust við í baráttuleik á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Fyrir leikinn var Leiknir í efsta sæti 1. deildar en Grótta í því 8. Allar aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru til fyrirmyndar, frábært veður og fullt af áhorfendum lögðu leið sína á völlinn. Gunnar Þorbergur var að sjálfsögðu á vellinum og fylgdist með gangi mála
Leikurinn sjálfur bauð ekki upp á mörg færi. Þrátt fyrir það var leikurinn langt í frá að vera leiðinlegur en bæði lið lögðu allt í sölurnar. Grótta spilaði aftarlega, reyndi að loka á spil Leiknismanna og beita hröðum sóknum þegar þeir unnu boltann. Leiknismenn spiluðu aftur á móti eins og lið í toppsætinu á að gera, þ.e. allir leikmenn vildu fá boltann og þeir gáfust aldrei upp á að reyna spila boltanum upp en voru óheppnir í dag með að það vantaði alltaf upp á úrslitasendinguna.
Langhættulegasta færi fyrri hálfleiks fékk fyrirliði Leiknis, Halldór Kristinn Halldórsson. Leiknir tók þá aukaspyrnu og boltanum var spyrnt inn í teig Gróttu, varnarmenn Gróttu náðu ekki að hreinsa frá og eftir mikið klafs datt boltinn til Halldórs sem skaut að marki framhjá Kristjáni Finnbogasyni í marki Gróttu en á línunni var Bjarni Jakob Gunnarsson sem náði að hreinsa frá. Eftir jafnan fyrri hálfleik var því staðan 0-0
Liðin breyttu ekki um taktík og seinni hálfleikur var um margt líkur þeim fyrri. En þegar líða tók á hálfleikinn tóku Leiknismenn öll völd á vellinum og settu þunga pressu að marki Gróttu. Sama hvað þeir reyndu náðu þeir þó ekki að brjóta varnarmúr Gróttu en oft vantaði þá eilítið meiri gæði í sóknarleik sinn á síðasta fjórðungi vallarins.
Á 76. mínútu gerðist umdeilt atvik þegar Sölvi Davíðsson leikmaður Gróttu féll við teig Leiknismanna. Gunnar Sverrir Gunnarsson dómari leiksins benti á vítapunktinn en aðstoðardómarinn sem var nær brotinu færði brotið rétt út fyrir teig. Ekkert varð úr aukaspyrnunni.
Þrátt fyrir þráláta sókn gestanna úr Breiðholtinu voru það heimamenn sem fengu hættulegasta færi hálfleiksins en það kom á 90. mínútu. Sölvi Davíðsson fór þá framhjá tveimur varnarmönnum Leiknist við vinstra vítateigshornið og skaut boltanum í fjærhornið þar sem hann datt í þverslá Leiknismanna. Þarna hefði Grótta svo sannarlega getað stolið sigrinum.
Skömmu síðar var flautað til leiksloka og endaði leikurinn með markalausu jafntefli.
Leiknismenn eru eflaust óánægðir með að fara ekki með sigur frá Nesinu. Þeir áttu eins og áður segir flottan leik en náðu ekki að skapa sér nóg af færum og nýtti ekki þau fáu sem þeir fengu.
Gróttumenn unnu svo sannarlega fyrir stiginu í kvöld. Allir leikmenn keyrðu sig gjörsamlega út og baráttan var allsráðandi. Miðverðir Gróttu, þeir Bjarni Jakob Gunnarsson og Knútur Jónsson voru þar fremstir í flokki björguðu oft á síðustu stundu en þeir nutu liðssinnis Kristjáns Finnbogasonar sem átti enn einn stórleikinn í búningi Gróttu.
Þrátt fyrir jafnteflið er Leiknir enn á toppi 1. deildar með 35 stig. Tveimur fleiri en Víkingar. Grótta missti aftur á móti HK fram úr sér og er nú 9. sæti með 17 stig.
Næsti leikur okkar manna er strax á föstudaginn þegar Gróttuliðið flýgur norður yfir heiðar og spilar við lið Þórs frá Akureyri. Fyrir Gróttufólk búsett í höfuðstað Norðurlands hefst leikurinn kl. 18:30 á nýja Þórsvellinum
Lið Gróttu í leiknum:
Kristján Finnbogason, Hrafn Jónsson (Ólafur Páll Johnson '46), Bjarni Jakob Gunnarsson, Einar Bjarni Ómarsson, Sölvi Davíðsson, Ásgrímur Sigurðsson (Garðar Guðnason '84), Guðmundur Bragi Árnason, Pétur Már Harðarson, Daniel Howell, Elvar Freyr Arnþórsson (Sigurvin Ólafsson '72).
Ónotaðir varamenn: Kjartan Ólafsson, Viggó Kristjánsson

