Knattspyrnudeild

Grótta óskar eftir að ráða þjálfara fyrir 3.- 7.flokk kvenna

Knattspyrna - Yngri flokkar

18.8.2010

Knattspyrnudeild Gróttu óskar eftir að ráða þjálfara fyrir 3. til 7. flokk kvenna. Kvenþjálfarar eru sérstaklega hvattir til þess að sækja um.

Knattspyrnudeild Gróttu starfrækir alla karlaflokka sem í boði eru og er kvennafótboltinn í hraðri sókn. Tilvonandi þjálfari kemur til með að leiða uppbyggingu kvennastarfsins og er hugsaður sem framtíðarþjálfari hjá félaginu.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ásmundur Haraldsson yfirþjálfari knattspyrnudeildar í síma 899-8708. Vinsamlegast sendið umsókn ásamt ferilskrá á grotta@grottasport.is fyrir þriðjudaginn 24.ágúst.

Íþróttafræði- eða uppeldismenntun er kostur og æskilegt að viðkomandi hafi sótt námskeið KSÍ. Viðkomandi myndi hefja störf 1.september.

 

4. flokkur kvenna á Rey Cup

 

Ragnhildur og Sóley fagna marki

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.