Knattspyrnudeild
Bjarni Jakob skrifar undir
Þær ánægjulegu fréttir bárust nú í kvöld að Bjarni Jakob Gunnarsson hafi samið við knattspyrnudeild Gróttu. Bjarni var lykilmaður í Gróttuvörninni á síðasta tímabili og kom við sögu í 21 leik í 1. deildinni í sumar. Bjarni Jakob er uppalinn Gróttumaður og hefur leikið 96 meistaraflokksleiki fyrir félagið. Hann á einnig að baki tvo leiki með Fjölni og tvo með varaliði KR. Það má því gera ráð fyrir að Bjarni muni leika sinn 100. leik fyrir Gróttu næsta sumar.
"Við í stjórninni erum ánægðir með að hafa samið við Bjarna Jakob. Hann er öflugur varnarmaður og góður liðsmaður innan vallar sem utan" sagði Hilmar Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar í samtali við fréttastofu nú í kvöld.
En má búast við frekar fréttum af leikmannamálum á næstu dögum ?
"Það er allt í vinnslu en við erum með mörg járn í eldinum þessa dagana, bæði Gróttumenn og mögulega einhver ný andlit. Kemur allt í ljós" sagði Hilmar sposkur áður en hann kvaddi fréttamann í blíðskaparveðri á Gróttuvelli nú fyrr í kvöld.
Fréttastofa Gróttusport óskar Bjarna til hamingju með nýja samninginn og fagnar því að hann leiki áfram í bláu næsta sumar.


