Knattspyrnudeild

Ali skrifar undir nýjan samning

17.1.2012

Knattspyrnukappinn fótafimi, Grétar Ali Khan, hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Gróttu. Samningurinn var undirritaður við hátíðlega athöfn í vallarhúsinu á föstudag en eins og kunnugt er skrifaði Bjarni Jakob Gunnarsson undir fyrir stuttu. Ali, sem leikur sem vinstri bakvörður eða kantmaður, er 27 ára og hefur leikið 113 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu. Hann er því næst leikjahæsi leikmaður liðsins á eftir Garðari Guðnasyni.

Grétar Ali er fæddur og uppalinn Vesturbæingur og lék með KR upp í 3. flokk. Í 2. flokki skipti hann yfir í Gróttu og stimplaði sig fljótlega inn í nýstofnaðann meistaraflokk félagsins. Ali var fyrirliði Gróttu þegar félagið tryggði sér sæti í 2. deild árið 2007 en ákvað eftir tímabilið 2008 að skipta yfir í Víking R. í 1. deildina. Ali átti erfitt uppdráttar í Fossvoginu og sneri aftur í heimahagana fyrir sumarið 2010 og hefur leikið með Gróttu síðustu tvö tímabil.

Stjórn knattspyrnudeildar sendi frá sér stutta yfirlýsingu eftir að samningurinn var undirritaður á föstudag.

"Það er mikil ánægja með að Ali hafi skrifað undir hjá okkur. Hann er sannur Gróttumaður og á að baki meira en 100 leiki fyrir félagið. Það eru leikmenn eins og hann sem verða mikilvægir í baráttunni um sæti í 1. deild næsta sumar."

Fréttastofa Gróttusport óskar Ali til hamingju með nýja samninginn og fagnar því að hann verði á fleygiferð upp og niður vinstri kantinn næsta sumar!

Þróttur - Grótta í bikar



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.