Knattspyrnudeild

Styttist í Þorrablót

20.1.2012

Gleðilegan bóndadag, bændur og húsbændur um land allt! Nú fer að styttast í Þorrablót Seltirninga en herlegheitin fara fram laugardaginn 28. janúar í félagsheimilinu. Miðasala hefur gengið vel og stefnir í fullt hús og rífandi stemningu. Það fer því hver að verða síðastur að tryggja sér miða á þennan stórviðburð.

Eins er mikilvægt að gengið verði frá greiðslu fyrir pantaða miða eigi síðar en mánudaginn 23. janúar. Miða má greiða á skrifstofu Gróttu um leið og þeir eru sóttir. Einnig má greiða inn á reikning nr. 0512-26-500500, kt 500192-2679 og senda kvittun á kristin@grottasport.is.  Þá er gott að setja í skýringu nafn þess aðila sem skráður er fyrir viðkomandi borði.

Dagskrá þorrablótsins er glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Kári Húnfjörð sér um veislustjórn, Björk Jakobs fer með gamanmál og sjálfur DJ Kiddi Bigfoot heldur uppi dúndrandi fjöri fram eftir nóttu.

Þorrablót 2012



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.